Fasteignaleitin
Skráð 2. des. 2025
Deila eign
Deila

Hafnargata 38

Atvinnuhúsn.Suðurnes/Reykjanesbær-230
314.3 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
115.000.000 kr.
Fermetraverð
365.892 kr./m2
Fasteignamat
38.850.000 kr.
Brunabótamat
132.810.000 kr.
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Eigandi / Löggiltur fasteignasali
Byggt 1893
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2219134
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta til skv. seljanda
Raflagnir
Endurnýjað að hluta til skv. seljanda
Frárennslislagnir
Endurnýjað út í götu skv. seljanda
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta þarfnast viðgerðar að hluta
Þak
Þarfnast viðgerðar að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Hafnargötu 38 / Paddy's, 230 Keflavík

Einstakt tækifæri til að kaupa fasteignir og/eða rótgróinn barrekstur á áberandi stað í miðbæ Keflavíkur. Um er að ræða tvær fasteignir ásamt öllum tækjabúnaði og innbúi Paddy's sem hefur verið vel sóttur og vinsæll staður undanfarin ár. Í húsnæðinu eru bar- og veitingasalir á tveimur hæðum auk tveggja herbergja íbúðar með sérinngangi á efstu hæð. Íbúðinni fylgir 23,4 m² bílskúr. Eldhúsaðstaða býður upp á möguleika til að stunda veitingarekstur samhliða barnum. Lóðin er rúmgóð og gefur áhugasömum kaupendum möguleika á að kanna frekari uppbyggingu eða nýtingu. / BÓKAÐU SKOÐUN HÉR

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að skoða tillögur um mögulega nýtingu lóðar.


Tvær fasteignir eru skráðar samkvæmt fasteignaskrá HMS og eru samtals 314,3 m² að stærð. Kjallari og jarðhæð (samtals 217,4 m²) eru skráðar undir fastanúmeri 221-9134, en efri hæðin (73,5 m²) og bílskúr (23,4 m²) mynda aðra eign undir fastanúmeri 223-0067. Fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.

Nánari lýsing og skipulag eignar:
Efri hæð:
Efri hæð er skráð sem 73,5 m² íbúð með tveimur herbergjum, baðherbergi, geymslu og rúmgóðu alrými en hefur verið nýtt sem starfsmannaaðstaða. Einnig er á hæðinni fullbúin eldhúsaðstaða með reykháfi sem gerir mögulegt að reka veitingaþjónustu á staðnum. Hæðin er með sérinngangi en einnig er hægt að komast þangað inn um stigagang frá 1. hæð. Með efri hæðinni fylgir 23,4 m² bílskúr.

Fyrsta hæð:
Á fyrstu hæð eru tveir barir, rúmgóður veitingasalur með sviði og sætaaðstöðu. Frá hæðinni er útgengt út á rúmgóðan pall bakvið húsið.

Kjallari:
Á neðri hæð hússins er annar salur sem skipt hefur verið upp í tvö rými. Annað rýmið er innréttað sem fullbúið karaoke-herbergi. Á þessari hæð eru einnig snyrtingar og góð geymsluaðstaða.

Byggingarlýsing:
Byggingin er á tveimur hæðum auk kjallara og stendur á staðsteyptum sökklum. Húsið er úr timbri og klætt að utan með bárujárni. Það er einangrað að innan og klætt með gipsplötum. Þakið er einnig klætt með bárujárni. Eignin var upphaflega reist árið 1893 og er friðuð bygging vegna aldurs og sögulegs gildis.

Lóð og aðkoma:
Eignin stendur á 728 m² lóð sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a. möguleika á viðbótarbyggingu eða endurskipulagningu (með fyrirvara um samþykki skipulagsyfirvalda). Bílastæði eru fyrir framan eignina, og rúmgóður pallur með setuaðstöðu er staðsettur að bakvið húsið.

Nánari upplýsingar veitir Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/03/201520.500.000 kr.16.000.000 kr.314.3 m250.906 kr.Nei
08/02/200816.560.000 kr.35.800.000 kr.314.3 m2113.903 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1983
73.5 m2
Fasteignanúmer
F2230067
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
02
Númer eignar
01
Húsmat
45.020.000 kr.
Lóðarmat
3.830.000 kr.
Fasteignamat samtals
48.850.000 kr.
Brunabótamat
30.800.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1950
23.4 m2
Fasteignanúmer
2230067
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.710.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin