Fasteignaleitin
Opið hús:20. okt. kl 17:30-18:00
Skráð 16. okt. 2026

Grænahlíð 10

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
124.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
885.576 kr./m2
Fasteignamat
98.650.000 kr.
Brunabótamat
64.050.000 kr.
Mynd af Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Húsið er eftir

Íslenskur módernismi og funkis.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1960
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2031435
Landnúmer
107264
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Frárenslislagnir og drenlögn endurnýjuð 2023
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Þak endurnýjað og þakkantur 2014
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir, suður og austur svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Seljandi hefur ekki búið í eigninni og hefur hún verið í útleigu síðan 2010.
 
Glæsileg 5 herbergja hæð í Sigvaldahúsi í Hlíðunum. Björt og rúmgóð fimm herbergja hæð í Grænuhlíð 10 í 105 Reykjavík. Eignin er 124,1 fm. á 2. hæð í reisulegu fjögurra hæða fjölbýlishúsi sem hinn virti arkitekt Sigvaldi Thordarson teiknaði.

Íbúðin skiptist í fjögur svefnherbergi og stóra stofu sem hægt er að stækka enn frekar með því að fjarlægja léttan vegg, þar sem parket er undir honum. Tvennar svalir sem snúa til suðurs og austurs opna þessa glæsilegu eign enn frekar. Húsið hefur verið gott viðhald í gegnum árin og í sameign er fallegur garður. 


Nánari lýsing eignar
Forstofa Gengið er inn af stigapalli inn í forstofuna með fataskáp og parketi á gólfi. 
Geymsla inn af forstofunni sem hægt er að nýta einnig sem þvottahús og eru lagnir til staðar.
Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á suður svalir út stofunni. Hluti stofunnar hefur verið gerður að herbergi og er auðvelt að fjarlægja hann þar sem parket er undir veggnum. 
Svefnherbergi sem er hluti af stofunni/borðstofunni með rennihurð og parketi á gólfi. 
Eldhús er opið að hluta við stofu, efri og neðri skápar með flísum á milli, tengi fyrir uppþvottavél, eldavél, gufugleypir, gott borðpláss og parket á gólfi. 
Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með opnu fatarými og parket á gófi. Útgengt er út á austur svalir úr hjónaherbergi. 
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, gluggi og flísalagðir veggir og gólf. 
Íbúðinni fylgir tvö geymslurými niðri.  Annað er undir stiga sem liggur niður í kjallara og hitt er lítil geymsla í kjallaranum. 
Þvottahús er í sameign þar sem hver og einn er með sértengi fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi. 

Helstu framkvæmdir á húsinu:
-2003: Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð.
-2006: Nýjar hellur og hitalögn norðan við húsið.
-2008: Epoxy sett á þvottahús, pípulagnir endurnýjaðar þar og vaskur settur.
-2010: Stigagangur í kjallara málaður.
-2014: Þak endurnýjað með Pvc-dúk og þakkantur lagaður.
-2015: Vatnslögn frá baðkari endurnýjuð.
-2017: Endurmúrun og allt húsið silonborið.
-2018: Allir gluggar og tréverk að utan lagað, skipt um flestallt gler.
-2018-19: Húsið málað að utan. 
-2023: Frárennsli endurnýjað og drenlögn lögð allan hringinn. Hellulagt í garðinum.
-2024: Svört filma sett á eldhúsinnréttingu.
-2026: Tröppur við inngang lagfærðar, rafmagnshitaþráður settur í og upp að útidyrum. 

Grænahlíð 10 er í vinsælu, grónu hverfi miðsvæðis, þar sem stutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla, verslanir og þjónustu. Gatan er kyrrlát og í næsta nágrenni við öflugt íþróttastarf og falleg útivistarsvæði í boði við klambratún og Öskjuhlíð. Gott aðgengi er að helstu umferðaræðum og stutt í almenningssamgöngur með tengingum um allt höfuðborgarsvæðið. 

Hér er um að ræða einstakt og sjaldgæft tækifæri fyrir þá sem vilja eignast rúmgóða fjölskylueign með fjórum svefnherbergjum í klassískum arkitektúr á eftirsóttum stað í hjarta Reykjavíkur, þar sem þjónusta, samgöngur og útivist fara saman. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðalækur 35
Opið hús:19. okt. kl 17:30-18:15
raudalaekur-35.jpg
Skoða eignina Rauðalækur 35
Rauðalækur 35
105 Reykjavík
133,3 m2
Fjölbýlishús
3
799 þ.kr./m2
106.500.000 kr.
Skoða eignina Súðarvogur 3
Bílastæði
Opið hús:19. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Súðarvogur 3
Súðarvogur 3
104 Reykjavík
115,5 m2
Fjölbýlishús
423
778 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Freyjugata 28 1.hæð
Bílskúr
Opið hús:19. okt. kl 17:00-17:30
Freyjugata 28 1.hæð
101 Reykjavík
135 m2
Fjölbýlishús
513
1033 þ.kr./m2
139.500.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 502
Opið hús:17. okt. kl 12:00-13:30
Orkureiturinn D1 502
108 Reykjavík
142,6 m2
Fjölbýlishús
322
1051 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin