Fasteignaleitin
Skráð 19. okt. 2026

Móabarð 18

HæðHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
122.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
651.713 kr./m2
Brunabótamat
57.650.000 kr.
Byggt 1958
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20782476
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með bílskúr við Móabarð 18
Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð ásamt bílskúr við Móabarð 18 í Hafnarfirði.
Eignin er samtals 122,6 fm, þar af er íbúðin 89,2 fm og bílskúrinn 33,4 fm.

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum og er með fallegu og opnu alrými, góðum svefnherbergjum,
rúmgóðu baðherbergi, þvottahúsi og stórum sólpalli með bæði heitum og köldum potti.

Nánari lýsing
Forstofa:
Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús og stofa:
Eldhús og stofa mynda fallegt og opið alrými. Eldhúsið er með hvítri innréttingu,
innbyggðum ofni og örbylgjuofni í vinnuhæð, spanhelluborði og rúmgóðri eldunareyju með skúffum.
Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Svefnherbergi:
Tvö svefnherbergi, bæði með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi:
Endurnýjað baðherbergi með flísum, walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og opnanlegum glugga.
Ný blöndunartæki eru við bæði sturtu og vask.
Þvottahús:
Þvottahús með sér útgönguhurð. Þar er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara
ásamt skápum fyrir ofan og möguleika á tauskúffum undir.
Sólpallur:
Stór og glæsilegur sólpallur með heitum og köldum potti. Gengið er frá pallinum niður að bílskúr.
Bílskúr:
Rúmgóður 33,4 fm bílskúr sem stendur fyrir neðan húsið. Í honum er vatn, rafmagn, ofn og rafmagnsopnari.
Gluggar eru á hlið bílskúrsins.
Helstu framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda
Framkvæmdir 2021
  • Eldhúsinnrétting endurnýjuð.
  • Ný blöndunartæki, vaskur, spanhelluborð, ofn og örbylgjuofn.
  • Nýjar lagnir fyrir heitt og kalt vatn í eldhúsi.
  • Allar ofnalagnir endurnýjaðar.
  • Nýr ofn í gangi.
  • Baðherbergi endurgert og flísalagt.
  • Walk-in sturta og ný blöndunartæki.
  • Nýtt salerni.
  • Rafmagnstafla endurnýjuð, bæði aðaltafla og greinatafla.
  • Ný heimtaug og 3-fasa rafmagn komið inn í hús.
Framkvæmdir 2024
  • Nýr ofn í bílskúr.
  • Sólpallur smíðaður.
  • Ný þvottahúsinnrétting og nýjar lagnir fyrir þvottavél.
  • Fataskápur í svefnherbergi.
  • Heitur pottur settur upp og tengdur.
  • Kaldur pottur.
Framkvæmdir 2026
  • Nýr ofn í svefnherbergi.
  • Ruslatunnuskýli smíðað.
  • Snjallmælar fyrir heitt vatn.
  • Fataskápur settur í forstofu.
  • Annað
  • Húsið er klætt að utan.
  • 3-fasa rafmagn er komið inn í húsið, en ekki í bílskúr.
-Ekkert starfandi húsfélag er í húsinu.
-Garði hefur verið skipt niður.
-Stór og góð útiaðstaða með heitum og köldum potti.

Um er að ræða eign sem hefur fengið miklar og vandaðar endurbætur á undanförnum árum og býður upp á góða aðstöðu bæði innan húss og utan.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturgata 48
Vesturgata 48
300 Akranes
145,7 m2
Fjölbýlishús
312
436 þ.kr./m2
63.500.000 kr.
Skoða eignina Miðvangur 41
Opið hús:22. okt. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Miðvangur 41
Miðvangur 41
220 Hafnarfjörður
45,3 m2
Fjölbýlishús
1
726 þ.kr./m2
32.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 18 - Efsta hæð
Efsta hæð
Holtsvegur 18 - Efsta hæð
210 Garðabær
112,5 m2
Fjölbýlishús
312
799 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Axlarás 10A
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Axlarás 10A
Axlarás 10A
221 Hafnarfjörður
160,6 m2
Raðhús
43
800 þ.kr./m2
128.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin