Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2026

Selás 5

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
92.9 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
806.243 kr./m2
Brunabótamat
58.450.000 kr.
Byggt 1990
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
21108152
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Um er að ræða sumarhús í sumarhúsahverfi í landi Áfgerðarholts, um 6 km. vestur af Borgarnesi. Húsið er skráð skv skráningu HMS 92,9 fm og stendur á 4,397 fm eignarlóð. Húsið er byggt í tveimur áföngum. Húsið er timburhús og eru undirstöður steyptar súlur. Rafmagnskynding og rafmagnsofnar í gamla hlutanum en gólfhiti í nýrri hlutanum.

Eignin skiptist í forstofu, fjögur svefnherbergi, eldhús og stofu sem mynda alrými, svefnálmu og baðherbergi. Svefnloft er yfir hluta hússins.

Eldri hluti hússins var byggður 1990. Sá hluti hússins er mikið uppgerður. Gluggar hafa allir verið endurnýjaði og útihurð. Þá eru nýjar rennihurðir á tvo vegu úr stofu út á sólpallinn. Ný gólfefni, parket er á þessum hluta hússins. Eldhúsinnrétting er ný með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og helluborð. Tvö svefnherbergi með nýlegu parketi á gólfum. Þessi hluti hússins er kyntur með vegghengdum ofnum.

Viðbygging er með standandi timburklæðningu með hita í gólfum. Gengt er á tvo vegu út á sólpall. Rennihurð er úr svefnherbergisálmu út á aðalsvæðið með heitum potti. Í svefnálmu er baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, vegghengt salerni og sturta, tvö svefnherbergi með parket á gólfum. Sólpallur er á með þremur hliðum hússins með skjólveggjum að hluta og heitum pottir. Lóðin er vel staðsett, kjarri vaxin, gott útsýni, leiktæki og lítill geymsluskúr.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þverásbyggð 27
Á einni hæð
Heitur pottur
Þverásbyggð 27
311 Borgarnes
103.4 m2
Sumarhús
414
479 þ.kr./m2
49.500.000 kr.
Skoða eignina Stekkar - Hádegishóll 3
Á einni hæð
Stekkar - Hádegishóll 3
311 Borgarnes
77.2 m2
Sumarhús
413
595 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina Hrísnes 9
Á einni hæð
Skoða eignina Hrísnes 9
Hrísnes 9
311 Borgarnes
77.4 m2
Sumarhús
413
516 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Dvergholt 15
Á einni hæð
Skoða eignina Dvergholt 15
Dvergholt 15
311 Borgarnes
85.3 m2
Sumarhús
413
737 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin