Stórglæsilegt vel við haldið sumarhús.
Árni B. Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Vatnsendahlíð 87, 311 Borgarbyggð, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 224-1523 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Eignin Vatnsendahlíð 87 er samkvæmt HMS, birt stærð 83.0 fm. (eignin er stærri en skráð stærð HMS segir, stækunin er óskráð)
Lýsing eignar:Um er að ræða timburhús sem er byggt í kringum 2000 og hefur ávalt verið vel við haldið.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, 2 svefnherbergi, svefnloft, baðherbergi og gestahús með tveimur svefnherbergjum og baðherbergi
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Flísar á gólfi og fatahengi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, snyrtilegri innréttingu, salerni, handklæðaofn og gert ráð fyrir þvottavél.
Svefnherbergin: í aðalhúsinu eru tvö. Parket á gólfi.
Svefnloft: Er rúmt og nýtist vel.
Eldhús og stofa: Renna saman í eina heild og fallegt útsýni er yfir Skorradalsvatn. Eldhúsinnrétting er upprunaleg en lítur vel út. Úr stofu er er hægt að ganga út á stóra timburverönd með rafmagns potti.
Gott geymslupláss: er að finna undir veröndinni.
Geymsla: Er við hlið inngangs.
Húsið er kynt með varmadælu, loft í vatn. Sólpallurinn nær allan hringinn í kring um bústaðinn. Gestahús:Svefnherbergin: Eru tvö og rúmgóð, með parket á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og upp veggi, virkilega huggulegt með upphengdu salerni, sturtu og snyrtilegri innréttingu.
Húsið hefur ávalt fengið gott viðhald og sjón er söguríkari.
Fallegt sumarhús með miklu útsýni við þessa einstöku náttúruperlu sem Skorradalurinn er. Stutt er í alla þjónustu og afþreyingu í Borgarnesi.
Pantið einkaskoðun.
Nánari upplýsingar veita:Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.