Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Álfhólsvegur 57

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
222.4 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
189.900.000 kr.
Fermetraverð
853.867 kr./m2
Brunabótamat
113.200.000 kr.
Byggt 1956
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
20581431
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Einstaklega fallegt og vel viðhaldið einbýlishús á fallegri 926 fm lóð í mikill rækt á eftirsóttum stað í Kópavoginum. Húsið hefur verið endurnýjað að mestu og fékk það viðurkenningu frá Kópavogsbæ árið 2004 fyrir vel heppnaða endurgerð. Birt stærð skv. HMS: Neðri hæðin er 79,9 fm, efri hæðin er 68,6 fm ásamt 73,9 fm bílskúr, samtals: 222,4 fm. Þess ber að geta að efri hæðin er undir súð og því er gólfflöturinn stærri en skráðir fm. Gólfhiti er í holi og í eldhúsi annars er ofnakerfi í húsinu. Húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum tíðina, fallegur timburpallur bakatil með heitum potti. Nýbúið var að endurnýja þakið að sunnanverðu þegar seljendur keyptu eignina og þau létu endurnýja þakið að norðanverður fyrir um tveimur árum síðan. Nýtt þak sett á bílskúr í kringum 2010 – lofthæð hækkuð um ca. 1,5 m. Mjög stórt bílaplan með hita - fimm svefnherbergi eru í húsinu. Möguleiki að breyta bískúrnum í íbúð. 

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu neðri hæðar, fatahengi. Frá forstofu tekur við gangur / hol með flísum á gólfi. Snyrtig á neðri hæðinni með glugga. Á vinstri hönd er stofa og borðstofa. Svefnherbergi á neðri hæðinni sem er nýtt í dag sem skrifstofa. Eldhúsið er mjög stórt með hvítri snyrtilegri innréttingu, gashelluborð og rafmagnsofn, gluggar á þrjá vegu, borðkrókur. Innaf eldhúsinu er hol með flísum, frá þessu rými er unnt að ganga út á pallinn bakatil. Flísalagt baðherbergi með sturtu og glugga á tvo vegu. Á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Innangengt í bílskúrinn þar sem komið er inn í opið rými og tvær geymslur innaf. Innst í bílskúrnum er saunaherbergi þar sem unnt er að ganga út á timburpallinn. Nýr glerfrontur með tvöfaldri opnun er á bílskúr Í bílskúrnum er einnig tengi fyrir þvottavél. Frá holi / gangi neðri hæðar er gengið upp stiga upp á efri hæðina. Parketlagður gangur en þar eru fjögur svefnherbergi og frá hjónaherbergi er gengið út á svalir. Baðherbergi með glugga, hvít innréttingu, baðkar og handklæðaofn. Gólfefni: parket, flísar að mestu á gólfum fyrir utan stigan upp á efri hæðina en þar er kókosteppi.

UM ER AÐ RÆÐA MJÖG FALLEGT OG VEL SKIPULAGT EINBÝLISHÚS Á EFTIRSÓTTUM STAÐ Í KÓPAVOGINUM ÞAR SEM STUTT ER Í SMÁRALINDINA, GRUNNSKÓLA, MENNTASKÓLANN Í KÓPAVOGI OG ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laufbrekka 30
Skoða eignina Laufbrekka 30
Laufbrekka 30
200 Kópavogur
228.5 m2
Raðhús
725
608 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Skoða eignina Ásgarður 26
Skoða eignina Ásgarður 26
Ásgarður 26
108 Reykjavík
132.2 m2
Raðhús
413
942 þ.kr./m2
124.500.000 kr.
Skoða eignina Ásgarður 26 2 EIGNIR
Ásgarður 26 2 EIGNIR
108 Reykjavík
180.4 m2
Raðhús
634
994 þ.kr./m2
179.400.000 kr.
Skoða eignina Ásgarður 26
Skoða eignina Ásgarður 26
Ásgarður 26
108 Reykjavík
48.2 m2
Raðhús
211
1139 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin