Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynnir bjarta, fallega og talsvert endurnýjaða stúdíóíbúð með sérinngang á frábærum stað í Miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er í reisulegu timburhúsi frá 1923 húsið hefur fengið gott viðhald.
Eignin er skráð skv. fasteignaskrá HMS 35,7 m².
Nánari lýsing:
Anddyri: Frá götu er gengið meðfram húsinu og að sérinngangi fyrir íbúðina.
Alrými: Frá stigapalli er gengið beint inn í alrými með eldhúsi og stofu.
Eldhús: Endurnýjað og er hluti af alrými. Ofn í vinnuhæð og innbyggður ísskápur.
Svefnherbergi: Innaf eldhúsi er gengið upp tvö þrep í svefnherbergi .
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað, flísalagt að mestu. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuhorn.
Þvottahús: Í sameign í kjallar er snyrtilegt þvottahús/þurrkherbergi. Hver íbúð með sín eigin tæki.
Geymsla: Í sameign er nett sérgeymsla fyrir íbúðina.
Frábært staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og afþreyingu
FyrirvararÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
29/09/2021 | 25.400.000 kr. | 32.000.000 kr. | 35.7 m2 | 896.358 kr. | Já |
09/07/2015 | 13.400.000 kr. | 14.200.000 kr. | 35.7 m2 | 397.759 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
110 | 45.2 | 44,9 | ||
105 | 47.6 | 46,9 | ||
107 | 54.7 | 42,9 | ||
111 | 53.7 | 44,9 |