Fasteignaleitin
Skráð 29. sept. 2026

Hæðargerði 29b

EinbýlishúsAusturland/Reyðarfjörður-730
191 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
74.500.000 kr.
Fermetraverð
390.052 kr./m2
Fasteignamat
61.250.000 kr.
Brunabótamat
103.800.000 kr.
Mynd af Heimir Arnfinnsson
Heimir Arnfinnsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2177246
Landnúmer
158353
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar; engin þekkt vandamál
Raflagnir
Rofar/tenglar 2021; annað upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar, ekki myndaðar
Gluggar / Gler
Gler skipt um 2017; móða í a.m.k. 2 gluggum
Þak
Málað 2018; járn komið á tíma, sjá galla
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Rafmagn / vatnskynding
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Gallar og atriði sem kaupanda er sérstaklega bent á

Eftirfarandi atriði eru þau sem seljanda og fasteignasala er kunnugt um. Upplýsingar seljanda eru úr skriflegum svörum hans 24.08.2026 og tölvupósti 10.10.2026 um skoðun á þakrými. Að auki eru tekin með atriði sem áhugasamur kaupandi benti á eftir að hafa skoðað eignina og þakrýmið með smið (tölvupóstur 06.10.2026); þau atriði hefur seljandi ekki staðfest sérstaklega og eru merkt sem slík.
Móða milli glerja í gluggum: Seljandi hefur upplýst um móðu í að minnsta kosti tveimur gluggum eignarinnar; áhugasamur kaupandi taldi móðu í að minnsta kosti fjórum gluggum við skoðun. Skipt var um flest allt gler í húsinu um 2017 eða fyrr, að sögn seljanda áður en hann keypti eignina; nákvæmt ártal liggur ekki fyrir.
Pallur á lóð: Pallur við húsið er kominn til ára sinna. Hann var málaður 2022. Undirstöður (dvergar) hafa verið settar niður vegna fyrirhugaðrar stækkunar pallsins en stækkunin var ekki framkvæmd.
Eignin er að miklu leyti upprunaleg frá byggingarári 1985. Innréttingar, gólfefni, lagnir, hitakerfi og rafmagnstafla eru að mestu frá þeim tíma nema annað sé tekið fram í lýsingu; rofar og tenglar voru endurnýjaðir að miklu leyti 2021.
Þak: Þakrýmið var skoðað 10.10.2026 af Jóni Ólafi á vegum seljenda, eftir að áhugasamur kaupandi spurði um loftun þaksins. Niðurstaða hans: öndun þakrýmis er eðlileg miðað við byggingartíma hússins, þá var ekki notast við öndunarrör eins og gert er í dag; auðvelt er að bæta rörum við en að hans mati er ekki þörf á því. Timbur í þaki lítur vel út. Lekið hefur með stökum nöglum, sem er ekki óalgengt í eldri húsum, og má laga með því að skipta nöglum út fyrir skrúfur. Komið er að endurnýjun þakjárns, en henni má að hans mati fresta um allt að 10 ár með því að skrúfa járnið niður og mála það. Kostnaður við járnskipti er áætlaður að hámarki um 2.000.000 kr. í efni og 2.000.000 kr. í vinnu. Jón Ólafur hefur boðist til að staðfesta þetta mat skriflega og sú staðfesting fylgir sölugögnum þegar hún liggur fyrir. Áhugasamur kaupandi, sem skoðaði þakrýmið með smið, hefur hins vegar fengið það ráð frá smiðum, verkfræðingi og arkitekt að bæta loftun við þakrýmið; verðtilboð sem hann aflaði í þá framkvæmd með frágangi á þakskeggi var um 500.000 til 1.000.000 kr. Kaupendum er bent á að meta þetta sjálfir með aðstoð fagmanns.
Ábendingar kaupanda eftir skoðun þakrýmis með smið (06.10.2026), ekki staðfestar sérstaklega af seljanda: Rakavarnarlag í þaki er rofið á stöku stað, þar sem farið hefur verið í gegnum það með tölvulögnum (cat-lögnum) og loftun frá baðherbergi. Op er úr bílskúr upp í þakrými hússins. Kaupendum er bent á að kynna sér þessi atriði við skoðun.
Hæðargerði 29B, Reyðarfirði: Einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr í rótgrónu íbúðarhverfi á Reyðarfirði. Húsið er byggt 1985 úr timbri, skráð 191,0 m² að stærð, þar af 36,0 m² bílskúr, og stendur á 1.025 m² lóð. Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og tvær stofur.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Eignin skiptist upp í forstofu, gang, stofu í tveimur hlutum, sjónvarpsherbergi, eldhús með borðkrók, hjónaherbergi með litlu baðherbergi inn af, tvö svefnherbergi, aðalbaðherbergi og innbyggðan bílskúr þar sem útbúið hefur verið um 12 m² herbergi innst. Pallur er við húsið.

- Einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr
- Fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi
- Eldhústæki endurnýjuð 2024
- Rofar og tenglar endurnýjaðir að miklu leyti 2021
- Rótgróið hverfi
- LAUS VIÐ KAUPSAMNING

SKIPULAG EIGNAR:

Forstofa: Gengið inn að sunnanverðu, forstofa með gangi inn í íbúðina.
Gangur: Gangur að svefnherbergjum og baðherbergi, lítil geymsla innan af gangi.
Stofa: Stofa í tveimur hlutum, borðstofa í miðju húsi og setustofa sem gengur út úr húsinu til norðurs.
Sjónvarpsherbergi: Sjónvarpsherbergi við stofu.
Eldhús: Eldhús með borðkrók og innréttingu, eldhústæki endurnýjuð 2024.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergi við hlið bílskúrs. Inn af því er lítið baðherbergi með salerni og sturtu.
Svefnherbergi 2 og 3: Tvö svefnherbergi í norðausturhluta hússins.
Baðherbergi: Aðalbaðherbergi við gang, stærra en á upphaflegri teikningu.
Bílskúr: Innbyggður bílskúr vestast í húsinu. Innst í honum hefur verið útbúið herbergi um 12 m² sem nýtt er sem fjórða svefnherbergið. Rýmið er skráð sem bílskúr hjá HMS.
Garður/lóð: 1.025 m² leigulóð með palli við húsið.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer: F2177246
Stærð: Einbýlishús á einni hæð, 191,0 m² (íbúð 155,0 m², bílskúr 36,0 m²)
Byggingarár: 1985
Byggingarefni: Timbur
Gildandi fasteignamat: 61.250.000 kr.
Fyrirhugað fasteignamat 2027: 59.600.000 kr.
Brunabótamat: 103.800.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, leigulóð, stærð lóðar er 1.025,0 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1
. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1,6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/04/201932.150.000 kr.39.000.000 kr.191 m2204.188 kr.Já
23/05/201424.950.000 kr.24.000.000 kr.191 m2125.654 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Garðsstaðir 5
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:12. nóv. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Garðsstaðir 5
Garðsstaðir 5
112 Reykjavík
178,4 m2
Raðhús
413
801 þ.kr./m2
142.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvangur 46
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Vesturvangur 46
Vesturvangur 46
220 Hafnarfjörður
197 m2
Einbýlishús
725
837 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 89
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:08. nóv. kl 13:30-14:00
Skoða eignina Hraunbær 89
Hraunbær 89
110 Reykjavík
187,1 m2
Raðhús
513
662 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Skoða eignina Hörgslundur 17
Heitur pottur
Skoða eignina Hörgslundur 17
Hörgslundur 17
210 Garðabær
179,4 m2
Raðhús
624
891 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin