NÝTT 75 FM ATVINNUHÚSNÆÐI Á ESJUMELUM MEÐ 50 FM MILLILOFTI – LAUST STRAXBilið hentar vel iðnaðarmönnum og verktökum, bílaverkstæðum og bónstöðvum, heildsölum og netverslunum með lager, ferðaþjónustu eða sem rúmgóð geymsla fyrir húsbíl, hjólhýsi eða bíla.
Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu nýtt 75 fermetra iðnaðarbil með innkeyrsluhurð, bil merkt 111 að Járnsléttu 2 á Esjumelum, 162 Reykjavík. Húsið var fullgert 2026 og bilið afhendist tilbúið til notkunar
með fullbúnu salerni.
Lofthæð er um 6 metrar við útvegg og
yfir 8 metrar í mæni, rafdrifin
innkeyrsluhurð er 3 x 4,5 metrar og hvert bil hefur sér rafmagnstöflu með
þriggja fasa tenglum. Í bilinu er um
50 fermetra milliloft með
3,6 metra lofthæð undir millilofti, sem nær tvöfaldar nýtanlegt gólfpláss. Olíuskilja er í húsinu og tvö merkt bílastæði fylgja bilinu.
Stærð eignarinnar er 75,30 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Milliloftið er ekki hluti af skráðri stærð eignarinnar hjá HMS. Bílastæði og hlutdeild í sameign eru ekki innifalin í skráðri stærð.
Bil 111 - Þetta bil, með millilofti125,3 fm / 38.000.000 kr.
Bil 109 75,3 fm / 34.500.000 kr. án millilofts
125,3 fm / 38.000.000 kr. með millilofti
Bil 120 65,1 fm / 29.900.000 kr. án millilofts
115,1 fm / 33.400.000 kr. með millilofti
Hægt er að kaupa bil með eða án millilofts. Fermetrar með millilofti er áætlaður heildar gólfflötur, ekki skráðir fermetrarSmelltu hér fyrir nánari upplýsingar - eða hringdu í Baldur fasteignasala í síma 450-0000
Aðal sölupunktar:- Nýtt og fullgert 2026, matsstig 7
- Lofthæð um 6 m við útvegg og yfir 8 m í mæni
- Um 50 fermetra milliloft með 3,6 m lofthæð undir millilofti, stigi upp frá innvegg. Samtals um 125 fermetrar í heild.
- Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m með glugga, gönguhurð við hliðina
- Sér rafmagnstafla í bilinu með 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum
- Fullbúið salerni með handlaug
- Hitaveita og ofnahiti, niðurfall, þakgluggi sem gefur dagsbirtu
- Olíuskilja í húsinu - hentar bílaverkstæðum, bónstöðvum og verktökum
- Tvö merkt bílastæði á malbikuðu plani beint fyrir framan bilið
- Hurð inn á sameiginlegan þjónustugang hússins - önnur útgönguleið / flóttaleið
- Stálgrind og einangraðar einingar á veggjum og þaki - viðhaldslítið hús
- Laust til afhendingar við kaupsamning
- Vsk-kvöð yfirtekin af kaupanda í vsk-skyldri starfsemi
Bilið skiptist í opið vinnurými með innkeyrsluhurð, milliloft og salerni með handlaug. Þá fylgja bilinu tvö merkt bílastæði og hlutdeild í sameign hússins, þar á meðal þjónustugangi og tæknirými.
Nánari lýsing:Vinnurými: Steypt gólf með niðurfalli, hvítar yleiningar á veggjum, lofthæð um 6 m við útvegg og yfir 8 m í mæni. Þakgluggi úr polycarbonati, LED loftlýsing, ofn og sér rafmagnstafla með 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum við innkeyrsluhurð.
Innkeyrsluhurð: Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m með gluggarönd. Gönguhurð við hliðina.
Milliloft: Um 50 fermetra milliloft, lofthæð undir um 3,6 m, stigi upp frá innvegg.
Salerni: Um 3,8 fermetra, salerni og handlaug.
Þjónustugangur: Hurð úr bilinu inn á sameiginlegan gang eftir miðju hússins, með aðgengi að inntaki og aðaltöflu. Inngangur á gang á báðum göflum hússins.
Húsið:Járnslétta 2 er 22 bila atvinnuhúsnæði byggt 2026. Húsið stendur á staðsteyptri plötu með járnbentum sökklum, burðarvirkið er stálgrind frá Hardeman í Hollandi, og það er klætt einangruðum yleiningum á veggjum og þaki. Bilin liggja í tveimur röðum, bak í bak, með yfirbyggðum þjónustugangi á milli. Olíuskilja er í fráveitukerfi hússins. Lóðin er malbikuð með tveimur merktum bílastæðum við hvert bil.
Staðan í dag:Húsið er fullgert (matsstig 7 hjá HMS) og bilið afhendist tilbúið til notkunar: steypt gólf, salerni fullbúið, rafmagn tengt með sér töflu, hiti á, innkeyrsluhurð með rafopnun og lóð frágengin. Kaupandi sér sjálfur um innréttingar, kaffistofu eða skrifstofu eftir þörfum.
Byggingarlýsing:Burðarvirki: Staðsteyptir sökklar og botnplata. Stálgrind með krossböndum í þaki og göflum, boltuð á steyptar undirstöður.
Veggir og þak: Einangraðar yleiningar (samlokueiningar með stálplötum og einangrunarkjarna). Mænisþak með þakgluggum úr polycarbonati.
Hiti: Hitaveita, ofnakerfi með sameiginlegri mælagrind fyrir húsið. Ofn í vinnurými.
Lagnir: Kalt og heitt neysluvatn á salerni. Gólfniðurfall í vinnurými. Olíuskilja í fráveitu hússins.
Rafmagn: Sameiginleg aðaltafla í þjónustugangi og sér greinatafla í hverju bili með aðalrofa, lekaliða og 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum. Loftlýsing og netbakki.
Hurðir: Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m, gönguhurð út og hurð inn á þjónustugang.
Kjör:- Verð 38,0 m.kr. með millilofti.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
- Vsk-kvöð hvílir á eigninni, áætluð um 5.761.762 kr. Kaupandi í vsk-skyldri starfsemi yfirtekur kvöðina. Kaupandi sem ekki er í vsk-skyldri starfsemi greiðir hana upp við kaupsamning.
- Fasteignamat 2026: 28.000.000 kr. / Fyrirhugað fasteignamat 2027: 29.350.000 kr.
- Brunabótamat: 25.050.000 kr.
Staðsetning: Esjumelar eru athafnasvæði við Vesturlandsveg, norðan Mosfellsbæjar við rætur Esju, þar sem fjöldi iðnaðar- og þjónustufyrirtækja hefur byggt upp á síðustu árum. Greið leið er á Vesturlandsveg í báðar áttir – í Mosfellsbæ og höfuðborgina annars vegar og á Kjalarnes og Vesturland hins vegar.
Bil 109 við hliðina (án millilofts) og bil 120 (65,10 fm) í sama húsi eru einnig til sölu hjá Baldri.
--- Smelltu hér til að skoða önnur bil ---Bil 111 - Þetta bil, með millilofti125,3 fm / 38.000.000 kr.
Bil 10975,3 fm / 34.500.000 kr. án millilofts
125,3 fm / 38.000.000 kr. með millilofti
Bil 12065,1 fm / 29.900.000 kr. án millilofts
115,1 fm / 33.400.000 kr. með millilofti
Nánari upplýsingar veitir:Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Að selja hjá Baldri