ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Dalsbraut 34, íbúð 102, 260 Reykjanesbær.
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja endaíbúð á fyrstu hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi í Dalshverfi í Reykjanesbæ. Íbúðin er með opnu og björtu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast á skemmtilegan hátt. Fallegar innréttingar, gott skipulag og rúmgóður sérafnotareitur sem snýr í suðvestur. Staðsetningin er góð, í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir og alla helstu þjónustu.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er birt stærð eignarinnar 64,5 m².
Eignin er merkt 01-02, fastanúmer 251-1933, ásamt öllu því sem henni fylgir, þar með talið tilheyrandi hlutdeild í lóð og sameignarréttindum.Nánari upplýsingar veita:
Jóna Björg Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5506 , tölvupóstur jona@allt.isDísa Edwards Löggildur fasteignasali, í síma 560-5510, tölvupóstur disa@allt.is Nánari lýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp.
Eldhús, borðstofa og stofa: Bjart og opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast á skemmtilegan hátt. Eldhúsið er með fallegri grárri innréttingu og kvarts stein frá Granítsmiðjunni. Frá stofu er gengið út á rúmgóða verönd.
Svefnherbergi: Íbúðin er með einu svefnherbergi sem er búið góðum fataskáp.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi, flísalagt. Þar er sturta, upphengt salerni og innrétting með kvarts stein frá Granítsmiðjunni. Handklæðaofn er á baðherberginu auk tengis fyrir þvottavél.
SameignÁ jarðhæð hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Helstu kostir eignarinnar:*Björt og vel skipulögð endaíbúð
*Opið og rúmgott alrými
*Falleg eldhúsinnrétting með kvartsborðplötu
*Góð staðsetning í Dalshverfi
*Stutt í skóla, verslanir og þjónustu
Um er að ræða fallega og vel nýtta tveggja herbergja íbúð þar sem skipulag, birta og góð staðsetning fara vel saman. Eign sem vert er að skoða.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.