Borgir fasteignasala kynnir eignina Grænás 3, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-3334 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Grænás 3 er skráð sem hér segir björt, rúmgóð og vel skipulögð 4ja herbergja íbúð í Reykjanesbæ. Birt stærð 109.2 fm.
- Ný eldhúsinnrétting, tæki og parket á eldhúsi 2021.
- Nýtt salerni, vaskur, skúffur og skápur 2020.
- Nýr ofn í stofu 2023.
- Nýr ofn í eldhúsi 2024.
- Nýtt þak 2021.
- Múrverk, sprungufyllt og málað 2020/2021.
Nánari upplýsingar veita:
Bjarklind Þór, Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupóstur Bjarklind@borgir.is.
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Flísalagt gólf og gott skápapláss.
Baðherbergi: Er að mestu flísalagt, með sturtubaðkari, baðinnréttingu með ágætu skápaplássi, plássi fyrir þvottavél, opnanlegur gluggi.
Eldhús: Nýlegt plastparket, með nýlegri mjög rúmgóðri hvítir háglans og dökkgrári innréttingu frá ikea þar sem ofn og örbylgjuofn er í vinnuhæð, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, keramik helluborð.
Hjónaherbergi: Parketlagt, rúmgott, og með skápum.
Barnaherbergi: Eru skráð 2 en búið er að opna á milli herbergja. Þau eru parketlögð og fataskápur í öðru.
Stofa/borðstofa: Í sameiginlegi opnu og björtu rými þar sem gengið er út í sólstofu sem er með gólfhita og snýr í suðvestur. Gengið er út úr sólstofu út á steyptan pall. Flísar á sólstofu, parket á stofu/borðstofu.
Geymsla: Er innan íbúðar, dúkur á gólfi og hillur á 2 veggjum.
Bílastæði: Sameiginleg með Grænás 3a
Í sameign Er vínildúkur á gólfum. Mjög snyrtileg og vel við haldið.
Umhverfi: Engin eign fyrir aftan húsið, stutt út á Reykjanesbraut. Fallegt útsýni frá sólstofu.