Fasteignamiðlun kynnir efri hæðina að Hornbrekkuvegi 7, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 215-4107 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.
Um er að ræða efri hæð í tvíbýli með sérinngangi, palli og frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, búri, stofu/borðstofu, baðherbergi, þremur til fjórum svefnherbergjum, þvottahúsi og geymslu. Búið er að endurnýja vatnslagnir og klóakslagnir innan eignarinnar, gólfefni, baðherbergi og eldhús. Einnig hafa hitaveituofnum verið skipt út sem og gler í gluggum. Eignin var klædd með bárujárnsklæðningu og einagruð fyrir nokkrum árum.
Fostofa: er flísalögð með ágætis fatahengi.
Eldhús: er með ljósri U-laga HTH innréttingu og grárri borðplötu. Nýlegt spanhella er í borðplötu.
Stofa/borðstofa: er parketlögð með frábæru útsýni yfir fjörðinn.
Baðherbergi: er með fibo tresbo plötum á veggjum og flísalagt á gólfi. Upphengt klósett, Walk in sturtuklefi, hvít innrétting og vaskur.
Svefnherbergi: eru þrjú talsins öll með parket á gólfi. Eitt herbergjanna er með útgang út á steyptar svalir. Möguleiki er á fjórða herberginu.
Þvottahús: er flísalagt með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara, vask og sérútgang út í garð.
Geymsla: er mjög rúmgóð með steyptu gólfi.
Pallur: er úr timbri og er fyrir framan eignina með timbur skjólvegg.
Garður: er grasi gróinn með timbur geymsluskúr.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali