Domusnova og Víðir Arnar kynna skemmtilega og bjarta efri sérhæð með sérinngangi í litlu fjölbýli á vinsælum og veðursælum stað við Garðsenda 12 í Reykjavík.Um er að ræða íbúð sem er skráð alls 97,50 m2 að stærð ásamt geymslu í kjallara. Íbúðin telur þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús og baðherbergi, en sameiginlegt þvottahús er í kjallara og sér geymsla. Á lóðinni er stór sameiginleg timburverönd og einnig geymsla sem tilheyrir eigninni sem er ekki talin í heildarfermetra. Húsið hefur fengið ágætt viðhald að utan nýlega og lóð er snyrtileg.
VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ Í FALLEGU LITLU FJÖLBÝLI Í EFTIRSÓTTU OG RÓLEGU HVERFI NEÐAN VIÐ SOGAVEG, ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU VERSLUN OG ÞJÓNUSTU ÁSAMT LEIK-, GRUNN OG FRAMHALDSSKÓLA.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT STRAXNánari skipting og lýsing eignahluta:Forstofa: Með flísum á gólfi og skáp og gengið er upp tröppur á næstu hæð í íbúðina.
Hol: Við inngang er hol eða breiður gangur með parketi og skáp sem tengir saman vistaverur íbúðarinnar.
Eldhús: Með upprunalegri innréttingu og nýlegu korkparketi á gólfi.
Stofa: Afar björt með parketi á gólfi og gluggum í þrjár áttir.
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi og vönduðum fataskáp.
Herbergi: Með parketi á gólfi og stórum gluggum í þrjár áttir. (yfirbyggðar svalir)
Barnaherbergi: Með parketi á gólfi og gluggum í tvær áttir.
Baðherbergi: Með sturtu, salerni, vaski, skáp og spegli. Tengi fyrir þvottavél. Flísalagt hátt og lágt.
Geymsla: Í kjallara er köld geymsla sem tilheyrir íbúðinni (4,9 fm)
Verönd: Sameiginleg timburverönd fyrir framan hús.
Geymsla á lóð: Á lóð er búið að koma fyrir klæddri 12 feta gámaeiningu og á íbúðin helming hennar sem nýtt er sem geymsla (rafmagnsofn er í rými). Stærð geymslu er c.a. 7,5 m2 og er ekki talið í heildarfermetra eignar.
Húsið var sprunguviðgert þar sem talin var þörf á suður-, norður- og austurhliðum árið 2021-2022.
Þriðja herbergið var útbúið með því að yfirbyggja svalir á framanverðu húsinu og því eru ekki svalir í íbúðinni.
Allar nánari upplýsingar veita:Víðir Arnar Kristjánsson, löggiltur fasteignasali - S 854 2226 eða vidir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.