Fasteignaleitin
Opið hús:23. sept. kl 17:00-17:45
Skráð 21. sept. 2026

Stigahlíð 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
83.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.700.000 kr.
Fermetraverð
832.736 kr./m2
Fasteignamat
64.600.000 kr.
Brunabótamat
42.850.000 kr.
Byggt 1957
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2030926
Landnúmer
107191
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Endurnýjað ártal ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað 2018
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega, bjarta og vel hannaða 83,7fm, 3ja herbergja íbúð á 4. hæð að Stigahlíð 6, 105 Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, hol, rúmgóða og bjarta stofu með útgengi út á suður svalir, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með innbyggðu baðkari og sturtublöndutækjum, eldhús með nýlegri innréttingu og sérgeymslu í sameign í kjallara. Í stigaganginum eru 8 íbúðir, 2 á hverjum palli. Húsið hefur fengið gott viðhald hins síðustu ár, þar má telja að allir gluggar hafa verið endurnýjaðir, þakjárn, þakrennur og niðurfallsrör. Þá hefur frárennlislagnir undir húsi verið fóðraðar og brunnar endurnýjaðir. Frábær staðsetning miðsvæðis, þar sem stutt er í Kringluna, verslunarkjarna Suðurvers, leikskóla, grunnskóla, menntaskóla og í göngufæri við háskóla, Öskjuhlíðina, Klambratún o.fl.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Nánari lýsing:
Forstofa / herbergjagangur: Innbyggt fatahengi. Tengir saman flest rými íbúðar.
Stofa: Stofan og borðstofa í opnu rúmgóðu rými þar sem útgengt er út á skjólgóðar suðursvalir.
Svefnherbergi I: Innaf stofu, rúmgott.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað. Baðkar með sturtu og glerskilrúmi, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting með neðri skúffum, vask ofan á og efri speglaskáp. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Eldhús: Innrétting endurnýjuð fyrir 8-10 árum. Gott skápa og vinnupláss. Innbyggður bakaraofn, helluborð og háfur í innréttingu. Aðstaða fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Svefnherbergi II: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara í sameign.

Gólfefni: Linoleum dúkur er á gólfum í íbúð, nema á baðherbergi og forstofu þar sem eru flísar.

Sameign: Sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla í kjallara stigagangsins. Stór skjólgóður og tyrfður garður fyrir aftan hús.
Bílastæði: Sameiginleg bílastæði á bílaplani fyrir framan hús

Lóð hússins er 3611,0 m².Á lóðinni eru 4 matshlutar, matshlutarnir 01, 02 03 og 04. Lóðin er í óskiptri sameign.

Afar vinsæl staðsetning miðsvæðis í borginni með skóla á öllum stigum í göngu- og hjólafæri ásamt íþróttasvæði Vals, útivistarperlum borgarinnar og miðbæ Reykjavíkur. 

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/08/202459.050.000 kr.65.900.000 kr.83.7 m2787.335 kr.
12/10/202242.100.000 kr.51.800.000 kr.83.7 m2618.876 kr.
25/05/200716.350.000 kr.17.100.000 kr.83.7 m2204.301 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala
https://www.betristofan.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grettisgata 5
Skoða eignina Grettisgata 5
Grettisgata 5
101 Reykjavík
96.3 m2
Fjölbýlishús
211
934 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Skógargerði 2
Skoða eignina Skógargerði 2
Skógargerði 2
108 Reykjavík
106.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
889 þ.kr./m2
94.400.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 13
Opið hús:21. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tryggvagata 13
Tryggvagata 13
101 Reykjavík
74.7 m2
Fjölbýlishús
2
1070 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 3 - Íb. 208
Bílastæði
Stefnisvogur 3 - Íb. 208
104 Reykjavík
85.3 m2
Fjölbýlishús
312
1019 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin