Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu fallega og einstaklega rúmgóða 2ja herbergja 77,8 fermetra íbúð með aukinni lofthæð í lítið niðurgröfnum kjallara í góðu húsi á eftirsóttum stað við Víðimel í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsi sem er staðsett innarlega í botngötu á kyrrlátum stað er með sameiginlegum fallegum grónum garði er til suðurs.
Nýlega er búið er að endurnýja rafmagnstöflu fyrir húsið og ný gólfefni eru á allri íbúðinni að undanskildu baðherbergi.
Geymsla í sameign sem fylgir þessari eign er ekki skráð í fermetra eignar.
Lýsing eignar:
Inngangur, sérinngangur parketlagður með fatahengi.
Gangur, parketlagður og rúmgóður með inngengum fataskáp / geymslu.
Eldhús, parketlagt og einstaklega rúmgott með nýlegri Ikea innréttingu, flísalagður hluti veggjar, eyja með spanhelluborði, háf, nýlegum bakarofn og góðri borðaðstöðu.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, nýlegt wc og handlaug, flísalögð sturta með nýlegum blöndunartækjum.
Herbergi, parketlagt og rúmgott með aðgengi frá gangi og einnig rennihurð í stofu.
Stofa, parketlögð og einstaklega rúmgóð.
Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla, ca 4,0 fermetrar, með glugga, máluð gólf, hillur og er ekki í fermetratölu eignar.
Sameiginlegt þvottaherbergi, rúmgott, lakkað gólf og sér tenglar fyrir hverja íbúð.
Sameiginleg hjólageymsla með útgengi á framlóð.
Sameiginlegt wc, er í sameign.
Húsið að utan lítur þokkalega út og hefur hlotið gott viðhald. Samþykki liggur fyrir að yfirfara og mála þak og greiðir seljandi fyrir það.
Lóðin er fullfrágengin og glæsileg, afgirt með nýlegri hellulagðri stétt, grasflöt og trjábeðum og er í óskiptri sameign hússins.
Staðstetning eignarinnar er á vinsælum stað í vesturbænum þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, Melabúðina, Kaffi Vest og fleira.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarinsehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.