Fasteignaleitin
Opið hús:30. mars kl 17:30-18:15
Skráð 25. mars 2026

Langholtsvegur 165

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
142.1 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
113.900.000 kr.
Fermetraverð
801.548 kr./m2
Fasteignamat
100.450.000 kr.
Brunabótamat
69.450.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2023467
Landnúmer
105693
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar lagnir
Raflagnir
Upphaflegar raflagnir.
Frárennslislagnir
Búið að yfirfara fyrir nokkrum árum
Gluggar / Gler
Upphaflegir gluggar
Þak
Nýtt þakjárn og pappi og þakklæðning yfirfarinn og endurbætt að hluta.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðaustursvalir
Upphitun
Ofnalagnir
Inngangur
Tveir inngangar
Gallar
Móða er á milli glerja í gleri í nokkrum gluggum í stofurými og i nokkrum gluggum efri hæðar.
Domusnova  og Sölvi Sævarsson lgf, kynna í einkasölu: Bjart og vel skipulagt 142,1 m² endaraðhús með 4 svefnherbergjum á góðum stað við Langholtsveg 165 í Reykjavík. Húsið er á þremur hæðum með aðalinngangi inn á miðhæð hússins. Sannkallað fjölskylduhús og er útgengt af miðhæð hússins út í gróinn garð með verönd við húsið. Garðhús á lóð með góðu geymslurými fyrir garðhúsgögn ofl.
Möguleiki að hafa aukaíbúð með sérinngangi á jarðhæð hússins. Stutt er að Vogaskóla, og leikskólunum Langholti og Steinahlíð.

 
  • Nýlegt þakjárn og pappi frá 2025
  • Eldhús endurnýjað  árið 2017
  • Frárennslislagnir endurnýjaðar árið 2012 
       EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA
 
Eignin er í heild skráð 142,1 m² skv. Hms, þar af er íbúð neðri hæðar 00-01 skráð 46  m².
Fasteignamat ársins 2026 er 100.450.000.- kr.  Byggingarár er 1960.


Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is 

Nánari lýsing:  
Miðhæð: skráð 50,1 m²

Forstofa – Með flísum á gólfi og innbyggðum fataskápum í vegg. Millihurð með gleri inn í á aðalhæð hússins.
Eldhús – Hvít endurnýjuð eldhúsinnrétting frá  árinu 2017 með kvartsstein í borðplötum. Ofn og combi ofn frá AEG uppþvottavél með comfort lift neðri skúffu og AEG spanhelluborði. Innbyggður AEG ísskápur í innréttingu sem fylgir eigninni.
Stofa – Bjart stofurými með gluggum á tveimur hliðum.  Harðparket á gólfi og útgengi út í garð, niður tröppur niður á hellulagða verönd ásamt  9 m²  garðhúsi sem tilvalið er að geyma garðhúsgögn, hjól ofl.

Efsta hæð: skráð 46 m²
Steyptur teppalagður stigi er upp á efri hæð með járnhandriði. Herbergisgangur með harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi 1  – Með harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi 2 – Með harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi – Rúmgott með harðparketi á gólfi og innbyggðum hvítum fataskápum á heilum vegg. Útgengt út á suðaustursvalir.
Baðherbergi – Með flísum á gólfi og að hluta til á veggjum. Baðkar með sturtuaðstöðu. Grá innrétting með ljúflokunum á skúffum. Stór hvítur vaskur. Efri skápur með speglahurðum. Opnanlegur gluggi á baði.

Jarðhæð: er skráð 46 m²
Steyptur flísalagður stigi er frá 1 hæð niður að jarðhæð.
Anddyri – með flísum á gólfi og millihurð inn í íbúð.
Sjónvarpshol/ leikrými – með flísum á gólfi
Þvottahús – Rúmgott með flísum á gólfi og veggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi í þvottahúsi.
Herbergi – Rúmgott flísalagt svefnherbergi með tveimur gluggum.
Salerni/snyrting – með flísum á gólfi og veggjum. Salerni og handlaug.
Geymsla – undir stiga sem er flísalögð.

Upplýsingar frá eigendum með framkvæmdir síðustu ára.
2025 Nýtt þakjárn og pappi, rennur og skorsteinsklæðning - ástand þakklæðningar metið og skipt um þar sem þurfti.
2025 Ný svalahurð í hjónaherbergi
2012 Skólplögn endurnýjuð og ný drenlögn í kringum allt húsið.
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar að miklu leyti.
2017 Eldhúsinnrétting endurnýjuð, Heimilistæki frá AEG ofn og combi ofn, AEG uppþvottavél með comfort lift neðri skúffu og AEG spanhelluborð.
 
Þinglýst samkomulag um framkvæmdir utanhús:
Fyrir liggur þinglýst skipting á viðhaldi utanhúss, og sér hver og einn um viðhaldi og framkvæmdum á sínu húsi
Sjá nánar:  Samkomulag um skiptingu viðhalds. Langholtsvegur 165 skiptist í tvo eignahluta fastanr 202-3469 og 202-3467 og 165a með þrjú fastanr, og gerum við því hér með samkomulag um að viõhald og endurnýjun húsanna skuli vera aðskilið, og eigendur hvers húss fyrir sig sjái um allt viðhald á sínum eignahluta hússins. Með viðhaldi húss er átt við allt viðhald, þaks, glugga, steypu, skolplagna ofl.

Að sögn eiganda er gott samkomulag við nágranna og gengu framkvæmdir við endurbætur á þaki vel og þá einnig skiptingu á kostnaði.
Bílskúrsréttur á lóð:  Leyfi er fyrir að byggja bílskúr á lóð við hlið hússins eins og sjá má á afstöðumynd - teikningu. 
  
Nánasta umhverfi:
Stutt er að Vogaskóla, og leikskólunum Langholti og Steinahlíð. Stutt í verslun og þjónustu í skeifuna og einnig í verslun og þjónustu að Álfheimum.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 79.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/09/201740.250.000 kr.50.000.000 kr.142.1 m2351.864 kr.
28/11/201126.150.000 kr.33.000.000 kr.142.1 m2232.230 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 10 íb101
Opið hús:26. mars kl 17:00-17:30
Eskiás 10 íb101
210 Garðabær
122 m2
Fjölbýlishús
43
975 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Grænalaut 10
Skoða eignina Grænalaut 10
Grænalaut 10
230 Reykjanesbær
144.4 m2
Fjölbýlishús
413
650 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Sjafnarvellir 15
Bílskúr
Skoða eignina Sjafnarvellir 15
Sjafnarvellir 15
230 Reykjanesbær
182.7 m2
Parhús
624
547 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 102
Opið hús:27. mars kl 12:00-12:30
Lautargata 5 íb. 102
210 Garðabær
139.4 m2
Fjölbýlishús
413
932 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin