Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega bjarta og fallega útsýnisíbúð á næstefstu hæð í lyftublokk við Fossveg 4 á Selfossi. Íbúðin er 92,6 fm og 3ja herbergja. Húsið er byggt árið 2002, viðhaldslétt og afar fallegt útsýni er yfir Ölfusið og til fjalla. Íbúðin er staðsett á gafli hússins og því með gluggum á þremur hliðum íbúðarinnar. Vel umgengin íbúð og í upphituðum bílakjallara er stórt einkastæði.
Nánari lýsing: Flísalögð forstofa með góðum fataskáp. Eldhús er opið inn í stofu með endurnýjaðri innréttingu þar sem flísalagt er á milli borðplötu og efri skápa. Stofa er björt og útgengt er á góðar svalir með virkilega fallegu útsýni. Tvö fín svefnherbergi, stór endurnýjaður fataskápur í hjónaherbergi og annar minni í barnaherbergi. Endurnýjað baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum að hluta, innréttingu, handklæðaofn og "walk in" sturtu með glervegg. Þvottahús 6 fm innan íbúðar með innréttingu og opnanlegu fagi. Einnig er sér geymsla í kjallara með hillum. Sameign er snyrtileg. Sameiginleg hjóla/vagna geymsla ásamt sér geymslu fyrir dekk. Gott húsfélag, rafhleðsla í bílakjallara og endurnýjað dyrasýmakerfi með myndavélum.
Rúmgóð og björt íbúð, talsvert endurnýjuð, staðsett á eftirsóttum stað á Selfossi í snyrtilegu fjölbýli. Getur fengist afhent með stuttum fyrirvara.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna. 1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar) 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Þrjú lítil svæði þar sem yfirborð á parketi er dældað. Annars er parket gott miðað við meira en 20ára notkun. - Hurðarhúnn á baðherbergi virkar en kemur ekki sjálfur aftur upp. - Þarf að smyrja gluggalæsingar með reglulegu millibili, virka allar en geta orðið stífar. - Tómarúmshljóð á 2-3 blettum undir flísum í sturtubotni, finnst við að banka í flísarnar en eru alveg fastar og gefa ekkert eftir og var notað kverkborða og vel af kvoðu á öllu baðherbergisgólfinu. - Yfirborðssprunga í efsta lagi á keramik eldhúsvask, einungis útlitsatriði. - Ein innstunga hefur ekki virkað í hjónaherbergi, annar virkar við hliðina og hefur því ekki verið gert neitt í því.
Endurbætur á undanförnum árum. - Baðherbergi tekið í gegn 2020, kvoðað og flísalagt, gerð walk in sturta og ofn skipt út fyrir handklæðaofn, nýjar innréttingar. - Eldhús sömuleiðis tekið í gegn 2020, ný eldhúseyja, nýr skápur og aðrar innréttingar lagaðar til og málaðar, nýjar eikarborðplötur og subway flísa 'splasback'. Helluborð og bakaraofn endurnýjað 2022. - Nýjir fataskápar í hjónaherbergi 2020. - Möguleiki er að leyfa innréttingu í stofu við sjónvarp að fylgja.
Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega bjarta og fallega útsýnisíbúð á næstefstu hæð í lyftublokk við Fossveg 4 á Selfossi. Íbúðin er 92,6 fm og 3ja herbergja. Húsið er byggt árið 2002, viðhaldslétt og afar fallegt útsýni er yfir Ölfusið og til fjalla. Íbúðin er staðsett á gafli hússins og því með gluggum á þremur hliðum íbúðarinnar. Vel umgengin íbúð og í upphituðum bílakjallara er stórt einkastæði.
Nánari lýsing: Flísalögð forstofa með góðum fataskáp. Eldhús er opið inn í stofu með endurnýjaðri innréttingu þar sem flísalagt er á milli borðplötu og efri skápa. Stofa er björt og útgengt er á góðar svalir með virkilega fallegu útsýni. Tvö fín svefnherbergi, stór endurnýjaður fataskápur í hjónaherbergi og annar minni í barnaherbergi. Endurnýjað baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum að hluta, innréttingu, handklæðaofn og "walk in" sturtu með glervegg. Þvottahús 6 fm innan íbúðar með innréttingu og opnanlegu fagi. Einnig er sér geymsla í kjallara með hillum. Sameign er snyrtileg. Sameiginleg hjóla/vagna geymsla ásamt sér geymslu fyrir dekk. Gott húsfélag, rafhleðsla í bílakjallara og endurnýjað dyrasýmakerfi með myndavélum.
Rúmgóð og björt íbúð, talsvert endurnýjuð, staðsett á eftirsóttum stað á Selfossi í snyrtilegu fjölbýli. Getur fengist afhent með stuttum fyrirvara.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna. 1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar) 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
05/08/2020
34.200.000 kr.
35.100.000 kr.
92.6 m2
379.049 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.