SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *VEL STAÐSETT HÚS MEÐ SJÁVARÚTSÝNI OG GARÐI* SAMEIGINLEG SUNDLAUG OG GRÆN SVÆÐI* *GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI, 2KM Á STRÖND*ERTU TILBÚIN(N) AÐ LIFA ÞÍNU BESTA LÍFI Í LEIK OG STARFI.
Bjart og vel skipulagt hús með sjávarútsýni, garði og þaksvölum á frábærum stað í hinu vinsæla Lomas de Cabo Roig hverfi, örstutt frá góðum golfvöllum, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. 2km fjarlægð frá strönd og 20-30 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu. Örstutt göngufæri í verslanir og veitingastaði. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast hús á góðu verði í frábæru umhverfi. Frábær fjárfesting, til útleigu og til að eyða frídögunum, eða til að búa í allt árið.
Allar upplýsingar veitir Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, í síma 0034 615 112 869 eða berta@spanareignir.isNánari lýsing:
Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Eldhús opið við stofu. Rúmgóður garður og þaksvalir með sjávarútsýni. Aðgangur að sameiginlegum sundlaugargarði. Eignin afhendist með húsgögnum og air con.
Rólegur staður en stutt er á fallega hvíta sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í nágrenninu, t.d. í Lomas de Cabo Roig Center og La Fuente. Stutt í La Zenia Boulevard, vinsælu verslana, veitingastaða og afþreyingamiðstöðina.
Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í næsta nágrenni, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast fallega eign á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Góðir skólar í næsta nágrenni, bæði spænskir og alþjóðlegir einkaskólar. Góð heilsugæsla í næsta nágrenni.
Verð: 235.000 evrur / 34.000.000 ISK miðað við gengi 145
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isMögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: endursala, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, sjávarútsýni
Svæði: Costa Blanca, Lomas de Cabo Roig,