LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 4ra. herb. sérhæð á jarðhæð við Gulaþing 8 með sér inngangi, tvennum veröndum og fallegu útsýni. Mjög barnvænt hverfi þar sem örstutt er í leikskóla, skóla og verslun. Íþróttamiðstöðin Kórinn er stutt frá ásamt fallegum útivistarperlum.Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús og geymslu. Gólfhiti er í íbúðinni. Tvennar verandir í suður og norður . Fallegt útsýni er úr stofu, eldhúsi yfir Elliðavatn, til Esjunnar og víðar.Nánari lýsing:Forstofa með með flísum á gólfi og góðum fataskápum sem ná uppí loft.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi, bjartar og opnar með parketi á gólfi og útgengt er út verönd með skjólveggjum og útigeymslu. Frábært útsýni, Opið er inn í eldhús frá stofum.
Eldhúsið er vel útbúið með innréttingu sem nær uppí loft. Flísar eru á milli efri og neðri skápa, ofninn er í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, eyja er í eldhúsinu með helluborði og viftuháf yfir, parket á gólfi.
Svefnherbergi: herbergin eru 3, öll rúmgóð með parketi á gólfi og fataskápum sem ná uppí loft.
Útgengt er út á rúmgóða verönd frá svefnherbergisgangi. Óbyggt svæði er við bakhlið hússins og falleg náttúra.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum , innrétting með efri og neðri skápum, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottaherbergi er innaf eldhúsi með flísum á gólfi, innréttingu, vaski og glugga.
Geymsla er innan íbúðar með parketi á gólfi og hillum.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð.
Húsið var hreinsað, sprungufyllt og sílanborið 2025.Niðurlag: þetta er virkilega vel skipulögð og góð fjölskylduíbúð á frábærum útsýnisstað í Kópavoginum þar sem stutt er í skóla, leikskóla, fallegar útivistarperlur og einnig er stutt í íþróttamiðstöðina Kórinn. Búið er að setja upp tengi fyrir hleðslustöð á sameiginlegu bílaplani húsanna. Lóð er frágengin og aðkoma góð með fjölda bílastæða.Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is