Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Eyravegur 34b íbúð 405

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
66.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
47.900.000 kr.
Fermetraverð
720.301 kr./m2
Brunabótamat
46.300.000 kr.
Byggt 2023
4. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
25180043
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Heimaland fasteignasala kynnir í einkasölu, Eyravegur 34b íbúð 305. 
Eyravegur 34b er 5 hæða fjölbýlishús byggt árið 2023, í göngufæri frá miðbæ Selfoss og allri helstu þjónustu. 
Um er að ræða 66,5fm íbúð með tveimur svefnherbergjum á fjórðu hæð. 

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, borðstofu/stofu og baðherbergi þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Nánari lýsing eignar: 
Forstofa er parketlögð með rúmgóðum fataskáp. 
Stofa og borðstofa í björtu opnu rými með parketi á gólfum og útgengt þaðan út á svalir í séreign.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu, heimilistæki frá Ormsson. AEG helluborð, bakarofn og innbyggð uppþvottavél.
Svefnherbergin tvö eru rúmgóð með hvítum fataskápum og parketi á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt með gólfsturtu, upphengdu wc og innréttingu. Einnig er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu. 

Á jarðhæð er sameiginleg vagna og hjólageymsla. Tvær sameiginlegar þaksvalir eru í byggingunni sem allir íbúar hafa aðgang að. Aðrar á fjórðu hæð og hinar á fimmtu. Gróin garður og frágengið bílaplan með rafmagnshleðslustaurum. 

Snyrtileg og vel skipulögð íbúð á góðum stað á Selfossi. Tilvalin fyrstu kaup! 

Nánari upplýsingar veita: 
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is
Elísa Dagmar Björgvinsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingar námi, sími 868-7938, elisa@heimaland.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyjavegur 4
Heitur pottur
Skoða eignina Eyjavegur 4
Eyjavegur 4
806 Selfoss
79.4 m2
Sumarhús
312
691 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Myrkholt 2
Skoða eignina Myrkholt 2
Myrkholt 2
806 Selfoss
74 m2
Einbýlishús
413
607 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Hæðarland 34
Á einni hæð
Skoða eignina Hæðarland 34
Hæðarland 34
800 Selfoss
95.2 m2
Raðhús
413
Fasteignamat 69.650.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Asparskógar 1
Efsta hæð
Skoða eignina Asparskógar 1
Asparskógar 1
300 Akranes
71.8 m2
Fjölbýlishús
312
820 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin