Fasteignaleitin
Skráð 30. júlí 2026

Kjartansstaðir 2

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-803
217 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
598.618 kr./m2
Fasteignamat
82.350.000 kr.
Brunabótamat
89.400.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1996
10. hæð
Garður
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2225156
Landnúmer
226017
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
010
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Ekki vitað um vandamál
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Seljandi áskilur sér rétt til að undanskilja land frá sölu eignarinnar þannig að land sem fylgi sé um 1,5 hektari. Endanleg stærð, staðsetning og afmörkun hins selda lands liggur fyrir við kaupsamningsgerð og er háð samþykki viðeigandi yfirvalda og stofnana. 
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna einstaklega fallega eign að Kjartansstöðum 2 í Flóahreppi. Um er að ræða rúmgott einbýlishús með innbyggðum tvöföldum bílskúr og um 1,5 hektara landi í grónu og friðsælu umhverfi skammt frá Selfossi.
Húsið er alls 217 fm, þar af er íbúðarhlutinn 161,5 fm og bílskúr 55,5 fm. Eignin stendur á fallegri lóð þar sem há tré mynda einstakt skjól og næði.
Húsið er bjart og rúmgott og skiptist í forstofu, rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni með sturtu, þvottahús og innbyggðan tvöfaldan bílskúr.  Eignin er tengd hitaveitu.
Möguleiki er á að kaupa meira land með húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa og borðstofa eru einstaklega rúmgóðar og bjartar með mörgum gluggum og útgengi út í garð með stórum sólpalli og heitum potti.
Eldhús hefur verið endurnýjað á virkilega smekklegan hátt. Þar er vönduð, hvít sérsmíðuð innrétting, gott skápa- og vinnupláss, stór eldunareyja með góðri aðstöðu og rúmgóður borðkrókur við glugga.
Þvottahús er rúmgott með innréttingu, góðu vinnuplássi og útgengi út í garð.
Hjónaherbergi er innst á svefnherbergisgangi, rúmgott með fataherbergi, Útgengt þaðan út á lóð.  Fataherbergi er með góðum hillum og hirslum.
Svefnherbergin eru alls fjögur og öll rúmgóð. Eitt þeirra er í dag nýtt sem skrifstofa.
Baðherbergi er mjög rúmgott en verið er að endurnýja það frá grunni, með "walk in" sturtu, baðkari, upphengdi salerni og handklæðaofni. Flísar á gólfi og veggjum.  
Gestasalerni er innaf forstofu með salerni, handlaug og sturtu.
Bílskúr er tvöfaldur, alls 55,5 fm, með góðu rými fyrir tvo bíla, geymslu og fjölbreytta nýtingarmöguleika. Innangengt er úr íbúðinni í bílskúrinn.  Ath. að mynd úr bílskúr er unnin með gervigreind!
Byggingarár skv. FMR er skráð 1995 en húsið var byggt árið 2003.
Kjartansstaðir 2 er sérstaklega falleg eign þar sem mikill trjágróður skapar gott skjól, næði og einstaka stemningu. 
Heimreiðin liggur í gegnum gróið umhverfið að húsinu og umhverfis það eru stór og falleg útisvæði. 
Staðsetningin sameinar kyrrð sveitarinnar og þægilega nálægð við alla helstu þjónustu á Selfossi.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/01/202144.683.000 kr.110.000.000 kr.999.5 m2110.055 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fagraland 4
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Fagraland 4
Fagraland 4
800 Selfoss
94.9 m2
Raðhús
413
715 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7B íb.601
Bílskúr
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:05. ágúst kl 18:00-18:30
Eirhöfði 7B íb.601
110 Reykjavík
202.8 m2
Fjölbýlishús
413
1060 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Austurvegur 57
Bílastæði
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Austurvegur 57
Austurvegur 57
800 Selfoss
89.6 m2
Fjölbýlishús
211
892 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Austurhólar 8
Skoða eignina Austurhólar 8
Austurhólar 8
800 Selfoss
101.5 m2
Fjölbýlishús
413
630 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin