*Eign í tvíbýli ásamt aukaíbúð á jarðhæð *LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega 163,2 m2 4.herbergja íbúð með sér inngang, á miðhæð í tvíbýli við Arnarhraun 15, Hafnarfirði. Íbúðin skiptist í anddyrisgang, stofu, borðstofu sem var áður svefnherbergi og auðvelt er að breyta aftur, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi ásamt þriggja herbergja íbúð á jarðhæð (sama fastanúmer, stigi milli hæða hefur verið fjarlægður) einnig með sér inngang, sem skiptist í anddyri, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Svalir til suðurs út frá stofu. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð. Geymsla (6,3 m2 ) í sameign sem er sameiginleg með efri hæð. Falleg fjölskylduíbúð í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Helstu endurbætur síðustu ár. *Eignin var áður á tveim hæðum en árið 2023 létu eigendur aðskilja hæðirnar og útbjuggu 54 m2 séribúð á neðri hæð, þar sem stigi á milli hæða var fjarlægður. *Nýjar rafmagnstöflur á báðum hæðum og nýtt rafmagn í mestum hluta eignarinnar.
*Neðri íbúðin er með nýjum vatnslögnum, ofnakerfi og skólp innanhús.
*Báðar íbúðirnar eru ný málaðar og með skemmtilegri hönnun með steypu áferð á veggjum.
*Miðhæðin er nýuppgerð og með fljótandi síldarbeins parketi nema á baðherbergi og anddyri.
*Á jarðhæð er vinylparket með viðaráferð.
*Skipt hefur verið um þónokkur gler og lista sl. árin.
*2012 var skipt um þakjárn og þakrennur.
*2020 til 2023 voru gerðar sprunguviðgerðir á ytra byrði og húsið málað 2023. Nánari lýsing efri hæð: Komið er inn i anddyri með góðu skápaplássi sem er lokað af með rennihurðum. Einnig er búið að útbúa þvottaaðstöðu þar. sem stigi var þar áður milli hæða. Á gólfinu eru 60/60 flísar.
Eldhús með fallega hannaðri eldhúsinnréttingu, kopar vaski og krana og sérsmíðuðum borðplötum.
Miðrými- Inn af anddyrinu er gengið inni parketlagt hol sem tengir öll rými eignarinnar.
Stofan er í opnu rými sem búið er að hanna fallega steypuáferð á veggjum ásamt skemmtilegum veggplötum sem mynda hlýleika. Gengið er út frá stofu á snyrtilegar svalir sem snúa til suðurs.
Borðstofa (var herbergi): Auðvelt er að útbúa aftur rúmgott svefnherbergi. Falleg sérsmíðuð rennihurð.
Svefnherbergi I: Gengið inn frá anddyri, rúmgott svefnherbergi.
Svefnherbergi II: Frá holi er gengið inn í hjónaherbergi með stórum fataskáp með rennihurðum.
Baðherbergið er flísalagt með hvítum flísum í hólf og gólf og baðkari. Það var tekið í gegn fyrir nokkrum árum af fyrri eigendum.
Síldarbeinsharðparket er á allri miðhæðinni fyrir utan baðherbergi og anddyri. Nánari lýsing auka íbúð: Gengið er inn í anddyri um sér inngang. Eldhús: Fallegt með eyju og aðstöðu fyrir þvottavél. Búið er að gera ráð fyrir að hægt sé að setja helluborð í eyju og bakaraofn í innréttingu.
Stofa: Stofan/ borðstofan er samliggjandi með eldhúsi í opnu rými.
Baðherbergi: Baðherbergið er skemmtilega hannað með sturtu með gylltum blöndunartækjum , innréeting með vaski ofan á borðplötu með gylltum blöndunartækjum og sérsmiðaðri rennihurð.
Svefnherbergi 1: Rúmgóður fataskápur er i barnaherberginu sem notað er sem vinnuherbergi i dag.
Svefnherbergi 2: Hjónaherbergið er rúmgott með fataskáp og fallegri sérsmíðaðri rennihurð.
Vinylparket er á allri íbúðinni.Bílskúrsréttur fylgir eigninni .Lóðin er snyrtileg og vel hirt, með sólpalli og tunnuskýli og garðurinn er sameiginlegur með húsinu. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is