LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í vel byggðu, nýlegu lyftuhúsi með lokuðum svölum og stæði bílageymslu miðsvæðis í Kópavogi.
**Stæði í bílakjallara **Þvottahús innan íbúðar **Lokaðar svalir í suður
Eignin er vel staðsett með alla helstu þjónustu í næsta nágrenni og stutt í stofnbrautir. Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:Íbúð er 89,9 fm merkt 01-0408 og geymsla er 11,2 fm merkt 01-00-43, samtals 101,1 fm að stærð. Stæði í bílageymslu merkt 04A16, fylgir með íbúð.
Nánari lýsing eignar:Forstofa með fataskápum og parket á gólfi.
Stofa og eldhús í opnu og björtu alrými með útgengt á góðar suðursvalir með svalalokun, kvartz í gluggakistum og parket gólfi.
Eldhús með eldunareyju sem hægt er að sitja við, span helluborð og kvartz á eyju, bakaraofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottvél.
Herbergi I með fataskápum og parket á gólfi.
Herbergi II með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með walk in sturtu, flísar á gólfi og inní sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús með innréttingu og vaski, flísar á gólfi.
Bílastæði í bílageymslu merkt 04A16 fylgir eigninni, rafhleðslustöð við stæði. Sameiginleg bílastæði eru á lóð.
Sérgeymsla íbúðar er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is---------------------------------------------------------------------------
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat