Fasteignaleitin
Skráð 23. júní 2026

Lómasalir 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
92.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
76.700.000 kr.
Fermetraverð
829.189 kr./m2
Brunabótamat
58.350.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22571771
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun - Davíð Matthíasson og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasalar kynna í einkasölu:
Um er að ræða vel skipulagða þriggja herbergja 92.5 fm útsýnisíbúð á þriðju hæð í lyftu fjölbýli á þessum vinsæla stað í Sala-hverfinu í Kópavogi.
Með íbúð fylgir stæði í lokaðri bílgeymslu með rafhleðslustöð sem að fylgir með í kaupum, og eins er búið að setja svalalokanir á svalir íbúðar. Inngangur í íbúð af svalagangi sem að er hálf lokaður með gleri.
Örstutt er í skóla, leikskóla, íþróttar, útivistarsvæði, alla þjónustu og helstu stofnbrautir.
ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 84.1 fm merkt 01-03-04 og geymsla er 8.4 fm merkt 01-00-16, samtals 92.5 fm að stærð.
Stæði í bílgeymslu er merkt 02.B16.
 

Nánari upplýsingar um eign:
Davíð Matthíasson lögg.fasteignasali s. 898-1713 eða david@landmark.is
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is


FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Forstofu, hol/gang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sérgeymslu og stæði í lokaðri bílgeymslu.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara. 

Nánari lýsing á eign:
Forstofa með flísalögðu gólfi, rúmgóður fataskápur.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými.
Eldhússinnrétting úr mahogany, gluggi við vask, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og innbyggður ísskápur, borðkrókur.
Borðstofa og stofa renna saman í eitt opið rými, stofu er útgengt út á flísalagðar suð-vestur svalir sem að búið er að loka með glerskilrúmum og er geggjað útsýni af svölum yfir höfuðborgarsvæðið og suður með sjó.
Tvö svefnherbergi eru í íbúð og eru bæði með fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, rúmgott baðkar og aflokaður sturtuklefi, ágætis innrétting er undir vask með skápum, gólfhiti á baðherbergi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baðherbergi.
Sérgeymsla á jarðhæð og stæði í lokaðri bílgeymslu og fylgir hleðslustöð með stæðinu.
Gólfefni: Parket og flísar á gólfum eignar.
 
Húsið lítur vel út og hér að neðan eru þær framkvæmdir sem að fram hafa farið síðan 2018:
- 2018 Múrviðgerðir, endursteining að hluta og sílaböðun á öllu húsinu.
- 2018 Þvottur og sílaböðun á steiningu sem ekki þurfti endurnýjun.
- 2018 Nýir vinklar í alla glugga og sleðar endunýjaðir eftir þörfum.
- 2018 Gluggar málaðir og ný vatnsbretti sett á.
- 2020 skipt var um glugga í sameign sem snúa til suðurs , teppi á stigagangi endurnýjuð og hann málaður sem og hurðar í sameign.
- 2020  svalir í sameign málaðar, settar nýjar flísar og ný niðurfallsrör.
- 2025 skipt um hurð í bílakjallara.
- 2025 hús sílanborið.
- Nýlega var útsogskerfi hússins endurnýjað.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is


 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 63 - 2 bílastæði
Laugavegur 63 - 2 bílastæði
101 Reykjavík
127.4 m2
Fjölbýlishús
312
706 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 12
Opið hús:02. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
77.8 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19,íb. 602
Bílastæði
Hringhamar 19,íb. 602
221 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
833 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15,íb.702
Bílastæði
Hringhamar 15,íb.702
221 Hafnarfjörður
100.2 m2
Fjölbýlishús
312
917 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin