Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir virkilega fallega og vandaða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með yfirbyggðri verönd og stæði í bílageymslu við Freyjubrunn 20 í Úlfarsárdal. Eignin samanstendur af forstofu, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, yfirbyggðri verönd, geymslu og bílastæði í bílageymslu.
Húsið er byggt 2016, sex íbúðir í stigaganginum, stærð eignarinnar er samtals 118,1fm auk stæðis í bílageymslu.
Nánari lýsing: Gengið inn á jarðhæð, mjög snyrtileg sameign.
Forstofa með fataskáp, rennihurð inn í íbúð, flísar á gólfi.
Alrými er bjart með eldhúsi, borðstofu og stofu, parket á gólfi.
Eldhús með nýrri innréttingu með góðu skápaplássi, tveir ofnar, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli, rými fyrir tvöfaldan ísskáp í innréttingu. Eyja með helluborði og góðu skápaplássi.
Stofa/borðstofa með parket á gólfi, útgengt út á 27,6fm yfirbyggða og einangraða verönd.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með fataskápum (annar laus), parket á gólfum.
Baðherbergið er rúmgott, innrétting með vaski, upphengt salerni, handklæðaofn, "walk in" sturta, innrétting utan um þvottavél og þurrkara.
Rúmgott einkastæði í bílageymslu, góð sérgeymsla og aðgengi að vagna- og hjólageymslum.
Skráðar stærðir samkv. HMS eru: íbúð 83,8fm, yfirbyggð verönd 27,6 fm, geymsla 6,7fm, samtals 118,1fm
Veröndin sem er 27,6fm er yfirbyggð og einangruð, gert með leyfi frá bæði arkitekt og Reykjavíkurborg, ekki hefur verið sótt um skráningu fermetra inn í birtar stærðir. Þessi viðbót er skráð á fasteignayfirliti og stækkar íbúðina mikið.
Um er að ræða sérlega fallega eign á góðum stað í Úlfarsárdal þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, golfvöll, nýja hverfismiðstöð og sundlaug, skóla og leikskóla.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.