Fasteignaleitin
Skráð 5. maí 2026

Birkibyggð 6

SumarhúsSuðurland/Flúðir-846
139.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
892.781 kr./m2
Fasteignamat
94.250.000 kr.
Brunabótamat
82.450.000 kr.
Mynd af Árni Björn Erlingsson
Árni Björn Erlingsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Garður
Fasteignanúmer
2360648
Landnúmer
224615
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Hitaveita
Birkibyggð 6, 140fm glæsilegt vel skipulagt heilsárshús sem stendur á hálfs hektara eignarlóð rétt við Flúðir.

Árni B.Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Birkibyggð 6, 846 Flúðum, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 236-0648 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi.


Lýsing eignar:
Húsið er byggt 2017 úr timbri og klætt að utan með læstri litaðri álklæðningu. Einhalla þak og er þakkantur klæddur með lituðu áli Gluggar eru álgluggar.
Hitveita er í húsinu, hiti í gólfum og Free@home hússtjórnarkerfi er í húsinu.
Að innan skiptist eignin í forstofu. stofu, borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa:  með vínilparket á gólfi og góðu skápaplássi.
Stofa:  vínilparket á gólfi, gólfsíðir gluggar virkilega björt og rúm stofa. Í lofti er bandsöguð hnota sem gefur rýminu skemmtilegan svip og útgengt er úr stofu á verönd.
Eldhús: er með sérsmíðaðri innréttingu. Stór eyja og mikið skápapláss. Steinborðplata er í eldhúsi og þar er falleg lýsing og gott vinnupláss.
Hjónaherbergi: parketflísar á gólfi, rúmgott herbergi með mikilli lofthæð. Gott skápapláss og útgengi frá herberginu út á verönd.
Svefnherbergi 2:  með parketflísum á gólfi og góðu skápaplássi, rúmgott herbergi með mikilli lofthæð.
Svefnherbergi 3:  með parketflísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergi 1: með  parketflísum á gólfi, flísar á hluta af veggjum, sturta, upphengt salerni og falleg innrétting.
Baðherbergi 2: með  parketflísum á gólfi, flísar á hluta af veggjum, sturta, upphengt salerni og falleg innrétting.
Einstaklega smekklegt og vel skipulagt hús.
Lóðin er þökulögð og stórt steypt plan er fyrir framan bústaðinn og stór steypt verönd á baklóð.

Svæðið er lokað með símahliði.

Nánari upplýsingar veitir:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/09/202576.950.000 kr.122.500.000 kr.139.9 m2875.625 kr.
14/12/202353.850.000 kr.97.000.000 kr.139.9 m2693.352 kr.
04/08/202249.850.000 kr.85.000.000 kr.139.9 m2607.576 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njarðarbraut 1
Skoða eignina Njarðarbraut 1
Njarðarbraut 1
260 Reykjanesbær
356.5 m2
Atvinnuhúsn.
2
398 þ.kr./m2
141.900.000 kr.
Skoða eignina Hrannarstígur 3
hrannarstígur3_vefur.jpg
Skoða eignina Hrannarstígur 3
Hrannarstígur 3
101 Reykjavík
100.4 m2
Fjölbýlishús
412
1055 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb104
Opið hús:06. maí kl 17:00-17:30
Eskiás 10 íb104
210 Garðabær
115.9 m2
Fjölbýlishús
43
948 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb201
Opið hús:06. maí kl 17:00-17:30
Eskiás 10 íb201
210 Garðabær
112.2 m2
Fjölbýlishús
43
980 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin