Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Miðholt 1 - 110
**Laus við kaupsamning**
Nýlegt og mjög gott iðnaðarbil að Miðholti 1 á Blönduósi, rétt fyrir utan bæinn, keyrt af Hringveginum. Bilið er þriðja frá vinstri séð á austurhlið. Samtals er það 108,5 fm að stærð. auk geymsluhillu sem telur um þriðjung af bilinu. Hátt er til lofts, stór rafdrifin innkeyrsluhurð, vaskur við inngönguhurð, salerni, vélslípað og ómálað gólf, upphitað með gólfhita og gott loftræstikerfi.
Geymsluhillan er opin og hafa þær samkv. byggingarlýsingu aðeins það hlutverk og þarf að sækja um aðra notkunarmöguleika til byggingayfirvalda.
Utanhúss er mjög stór athafnalóð, með malbikuðu stæði að stærstum hluta en auk þess er malarstæði fjær húsinu.
Annað: -Límtréshús á steyptum grunni
-Innkeyrsluhurð er yfir 4,2 metrar
-Hæð undir geymsluhillu er ca. 3,2
-Fremst í bilinu er hæð um 5,5 metrar og hækkar mest upp í um 7,5 metra innst
-Mjög góð lýsing
-Stafrænn nemi fyrir gólfhita
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:olafur@byggd.is
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:
464 9955