Fasteignasalan TORG og Margrét Rós lgf. kynna í sölu 3ja herbergja íbúð á 1. hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu að Engjaseli 35 í Seljahverfinu. Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu innan sameignar. Vel skipulögð eign á vinsælum stað í Seljahverfinu. Stór sameiginegur garður er bak við húsið. Stutt er í leik- og grunnskóla ásamt alla helstu þjónustu og verslanir. Íbúðin er laus við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í síma 856-5858 eða margret@fstorg.is. *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 92,5 m² þar af er íbúð skráð 85,6 m² og sér geymsla í kjallara skráð 6,9 m² - Bílastæði í bílageymslu merkt: B016 (32,9 m²) tilheyrir eigninni.Nánari lýsing:Anddyri, komið er inn í parketlagt anddyri með fataskáp og opið við hol.
Hol er parketlagt, inn af anddyri og sameinar önnur rými íbúðar.
Stofa er opin inn af holi með parket á gólfi. Rúmar vel borðstofu og stofu, og útgengt þaðan út á norð-vestur svalir með útsýni, m.a. yfir Esjuna og Snæfellsjökul.
Eldhús er rúmgott með eldri innréttingu og borðkrók, dúkur á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, með parket á gólfi og fatakápum. Einnig er skápur í holi fyrir framan svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, innréttingu með handlaug og neðri skápum, salerni og tengi fyrir þvottavél. Stæði fyrir þvottavél er í skápainnréttingu.
Parket á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi og eldhús.
Sérgeymsla íbúðar (6,9 m²) með hillum er staðsett inn af sameignargangi í kjallara hússins.
Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt þurrkherbergi og sameiginlegri geymslu.
Stæði í lokaðir bílageymslu (32,9 m²) fylgir eigninni og er innangengt úr húsi.
Góð
bílastæði á tveimur stöðum utandyra tilheyra húsinu og húsunum í kring.
Vel skipulögð íbúð í litlu fjölbýli á vinsælum stað í Seljahverfinu. Stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
856-5858 /
margret@fstorg.is.Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.