Fasteignaleitin
Skráð 21. ágúst 2026

Vörðubrekka 8

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-806
5,866 m2
Verð
4.900.000 kr.
Fermetraverð
835 kr./m2
Fasteignanúmer
25286901
Húsgerð
Jörð/Lóð

Stórborg fasteignamiðlun kynnir í einkasölu eignarlóðina Vörðubrekka 8, 806 Selfoss,nánar tiltekið eign merkt 01-01,  ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi eignarlóðar réttindi.
Eignin Vörðubrekka 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 2528689, birt stærð 5866.0 fm. Eignarlóð undir sumar/heilsárshús.
Fjarlægð er rétt tæplega 100km úr Reykjavík á bundnu slitlagi.
Eignarlóð með fallegu útsýni steinsnar frá Laugarási í Biskupstungum úr landi Iðu 2. Lóðin er 5866 fm í rólegu sumarhúsahvefi í fallegri hallandi hlíð. Landið er í norðurhlíðum Vörðufells og hallar til austurs og er svæðið þekkt fyrir veðursæld. Lóð er í nágrenni við margar af helstu náttúruperlum Suðurlands. Aðkoman er frá gamla Skálholtsveginum. Örstutt er yfir í Laugarás og Skálholt. Stutt er í Reykholt og Flúðir. Góð aðkoma og frábært útsýni til fjalla. Staðsetning er rétt hjá Hvítá, rétt hjá Laugarási. Landið er í hlíðum Vörðufells í halla og með útsýni.
Búið er að opna baðlón í Laugarási. Er það glæsileg aðstaða og með veitingastað.

sjá:Glæsilegt baðlón við árbakka Hvítár
laugaraslagoon.is

Gott aðgengi er að lóðinni, hitaveita og neysluvatn ásamt rafmagni komið á svæðið. Tengigjöld skv. gjaldskrá rafveitunnar og Veitna. Gert er ráð fyrir sameiginlegri rotþró er á svæðinu en eins geta menn sett upp rotþró á hverri lóð með heimild heilbrigðisnefndar sveitarfélagsins. Hver lóðareigandi sér um aðkomu að sinni lóð frá veginum.
Búið er að gera veg inn á lóð ( upp hlíðina) að byggingareit lóðar. Samkvæmt deiliskipulagstillögu má byggja eitt hús á lóð. Samanlagt byggingarmagn húsa má vera allt að 170-207fm. (nýtingarhlutfall er að hámarki 0.03.). Ennig má á lóðunum reisa svefnhús/gróðurhús að hámarki 30 fm. Ath enginn veiðiréttur fylgir lóðinni í Iðu/Hvítá.
Um Vörðufell: Vörðufell (391m) stendur stakt sunnan og austan Hvítár hjá Iðu og skammt frá Skálholti. Það er þríhyrningslaga og er bæði í Biskupstungum og á Skeiðum. Uppi á fjallinu er lítið stöðuvatn, Úlfsvatn, sem reynt var að sleppa í silungi. Fjallið er úr móbergi og grágrýti.

Útsýnið ofan af Vörðufelli er afbragðsgott á góðum degi og sífellt fleiri leggja leið sína þangað.
Algeng gönguleið er á Vörðufellið. Göngutími er 5-6 tímar.
Golfvellir og sundlaugar eru einnig í næsta nágrenni. ( Flúðir/Geysir/Reykholt)

Nánari upplýsingar veitir: Stefán Hrafn lögm,löggfasts. s:8952049, stefan@storborg.is


 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hóll
Heitur pottur
Skoða eignina Hóll
Hóll
806 Selfoss
43,256.7 m2
Jörð/Lóð
826
3 þ.kr./m2
147.900.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 20, íbúð 0301
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:25. ágúst kl 17:30-18:00
Sambyggð 20, íbúð 0301
815 Þorlákshöfn
105.9 m2
Fjölbýlishús
413
679 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 20 íbúð 302 HLUTDEILDARLÁN
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:25. ágúst kl 17:30-18:00
Sambyggð 20 íbúð 302 HLUTDEILDARLÁN
815 Þorlákshöfn
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
746 þ.kr./m2
55.500.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 17, með bílskúr
Bílskúr
Á einni hæð
Ísleifsbúð 17, með bílskúr
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin