Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2023

SPÁNAREIGNIR - Ciudad Quesada

Nýbygging • EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
250 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
159.300.000 kr.
Fermetraverð
637.200 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
807170926
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGOTT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ* *FRÁBÆR STAÐSETNING* *STÓR KJALLARI*


Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús á einni hæð með góðum garði og einkasundlaug í Ciudad Quesada, fallegum spænskum bæ, um 45 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, fjögur baðherbergi og 1 gestasnyrting. Stór kjallari með mikla möguleika. Einkasundlaug. Þetta er með glæsilegri einbýlishúsum og aðeins eitt hús er eftir!

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869 


Nánari lýsing:
Húsið stendur á á rúmlega 500 fm hornlóð. Rúmgóð stofa, borðstofa og vel hannað eldhús í björtu opnu rými. Master svefnherbergi með sér baðherbergi og fataherbergi, tvö svefnherbergi til viðbótar, bæði með sér baðherbergi og auk þess gestasnyrting. Þvottahús. Ca. 100 fm rými í kjallara sem hægt er að nýta sem tómstundarrými, vinnuaðstöðu, sjónvarpsherbergi og/eða gestaherbergi og þar er baðherbergi. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Verönd út frá stofu og einkasundlaug. Bílastæði inni á lokaðri lóð.

Verslanir og veitingastaðir í göngufæri, auk þess líkamsræktarstöð og skemmtilegar gönguleiðir. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir á svæðinu, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Ciudad Quesada er skemmtilegur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi bæjarlífi,  Ca. 30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. 

Verð 1.099.00 evrur (ISK 159.300.000 - 1Evra=145ISK.) + kostn. við kaupin.

Húsið verður tilbúið til afhendingar í mars 2027.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, air con, einkasundlaug, kjallari
Svæði: Costa Blanca, Ciudad Quesada,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
807170926

Myndir (72)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Spánn - Costa Blanca
270 m2
Einbýlishús
533
303 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Digranesheiði 27
Heitur pottur
Digranesheiði 27
200 Kópavogur
244.2 m2
Einbýlishús
845
774 þ.kr./m2
189.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 35
Opið hús:23. ágúst kl 14:00-14:30
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 35
Vorbraut 35
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 33
Opið hús:23. ágúst kl 14:00-14:30
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 33
Vorbraut 33
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin