Fasteignamarkaðurinn ehf. kynnir til sölu virkilega glæsilegt og mjkög mikið endurnýjað 254,0 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með fallegu útsýni og á glæsilegri lóð við Sunnuflöt í Garðabæ.
Á efri hæð hússins eru forstofa, hol, samliggjandi borð- og setustofa, sjónvarpsstofa, eldhús, gangur, tvö baðherbergi, tvö barnaherbergi og hjónasvítu með baðherbergi innaf.
Á neðri hæð hússins eru forstofa, hol, tvö stór barnaherbergi, baðherbergi, geymsla, líkamsræktarrými, þvottaherbergi og bílskúr.
Stórglæsileg lóð, verönd sem er afgirt og skjólgóð. Mjög fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni og örstutt í skóla, íþróttir, verslanir og náttúruna í Heiðmörk.
Glæsilegt hús sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, einstök staðsetning á höfuðborgarsvæðinu. Innkeyrsla er hellulögð, steyptar tröppur og veggir, stór viðarverönd á baklóð með heitum potti, skjólveggjum, tjörn og þremur litlum húsum, þar af tveimur sem eru með rafmagni og hita. Hitalagnir í innkeyrslu, í hellulögðum veröndum og í tröppum.
Húsið var allt málað að utan, sem og tréverk árið 2025.
Lýsing eignar:
Efri hæð hússins sem er 175,0 fermetrar að stærð skiptist þannig:
Forstofa, mósaíklögð og rúmgóð með fataskápum og rennihurð við hol.
Hol, parketlagt og bjart.
Stofa, gengið niður tvö þrep í parketlagða, rúmgóða og bjarta stofu með fallegum arni, fallegu útsýni og útgengi á verönd til suðurs og þaðan niður á lóð.
Sjónvarpsstofa, innaf stofu, parketlögð og með föstum innréttingum.
Borðstofa, parketlögð, björt og rúmgóð og með útgengi á lóð til vesturs.
Eldhús, sem bæði er gengið í úr holi og borðstofu er parketlagt og með stórum gluggum. Innréttingar með graníti á borðum að hluta, innbyggðri uppþvottavél og gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp.
Búr, bakinngangur, innaf eldhúsi og þaðan er útgengi á baklóð.
Baðherbergi I, með glugga, flísalagt gólf og veggir og flísalögð sturta.
Svefngangur, parketlagður og rúmgóður.
Baðherbergi II, flísa- og mósaíklagt gólf og veggir, innréttingar, vegghengt wc og stórt flísalagt baðkar með innbyggðri sturtu og tækjum í vegg.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með miklum innbyggðum fataskápum.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott.
Hjónaherbergi, parketlagt og stórt með miklum fataskápum.
Baðherbergi, innaf hjónaherbergi, er með glugga, flísalagt gólf og veggir, gólfhiti, innrétting, flísalögð tvöföld sturta og handklæðaofn.
Neðri hæð hússins, sem er skráð 79,0 fermetrar að stærð og innangengt er í af svefngangi efri hæðar auk þess að vera með sérinngangi, skiptist þannig:
Forstofa, flísalögð og rúmgóð með fataskápum.
Hol, parketlagt.
Barnaherbergi III, flísalagt með gólfhita og með fataskápum.
Baðherbergi, flísalagt gólf og hluti veggja, innrétting og sturtuklefi.
Barnaherbergi IV, parketlagt og stórt með fataskápum.
Bílskúr, sem er skráður 51,0 fermetri að stærð, hefur verið breytt í geymslu, líkamsræktarrými, þvottaherbergi og bílskúr. Rými er með gluggum, mótor á hurð, rennandi heitu og köldu vatni. Gólf í rýminu eru flísalögð.
Lóðin, sem er leigulóð frá Garðabæ er 951,0 fermetri að stærð og er öll virkilega glæsileg. Skipt hefur verið um jarðveg í lóðinni, plantað nýjum gróðri, steyptar nýjar útitröppur og skjólveggir við aðalinngang, innkeyrsla hellulögð, byggð stór viðarverönd á baklóð með tjörn, heitum potti og litlum útihúsum o.fl.
Flatahverfi Garðabæjar er eitt það vinsælasta á höfuðborgarsvæðinu og stendur við Garðahraun. Í hverfinu eru gönguleiðir um allt og tenging við náttúruna til sjávar og inn í Heiðmörk. Hverfið er sérstaklega fjölskylduvænt þar sem stutt er í grunnskóla og allt íþróttastarf Garðabæjar. Húsið er aðeins sýnt í einkasýningu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is