SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM – FLOTT RESORT* *MÖGULEIKI AÐ BÆTA VIÐ KJALLARA*Vönduð og falleg einbýlishús á tveimur hæðum, staðsett á frábærum stað í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm. SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm. Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jógasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares.
Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.
Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 0034 615112869.
Nánari lýsing:Neðri hæð:
Góð stofa, borðstofa og eldhús í björtu og opnu rými. Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og baðherbergi. Stór verönd og sér garður með sundlaug framan við húsið. Aftan við það er einnig verönd og bílastæði á lóð. Úti og innirými eru vel tengd og mynda skemmtilega heild.
Efri hæð:
Tvö svefnherbergi með góðum fataskápum og eitt baðherbergi. Útgengt er úr öðru svefnherberginu á 19 fm svalir.
Möguleiki er að bæta við 76 fm kjallara gegn auka gjaldi. Kjallarann er hægt að nýta á ýmsa vegu, td. fyrir aukasvefnherbergi, vinnuaðstöðu eða tómstundarrými.
Húsið er 114 fm og svalir 19 fm, samtals 133 fm.
Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni. Dásamleg fjölskylduparadís.
Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK.
Verð frá 459.900 Evrum (66.700.000 ISK) + skattur 10% og ca. 3% kostn. við kaupin. Afhending er 12 mánuðum eftir undirritun samnings.
Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni. Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, kjallari, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,