Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Urðarvegur 20 Ísafirði - Töluvert endurnýjað, stórt og rúmgott raðhús á tveimur hæðum með bílgeymslu.
Á neðri hæð er forstofa, eitt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla, kyndiklefi, hol með stiga upp á efri hæð.
Á efri hæð er stórt opið eldhús og borðstofa, stór stofa með útgangi á sólpall, svafnálmugangur, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Bílskúr telst vera 28,6 m² að stærð.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eitt svefnherbergi á neðri hæðinni, parket á gólfi. Uppgert baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, góð sturta og hiti í gólfi.
Rúmgott þvottahús. Geymsla með hillum inn af þvottahúsi. Kyndiklefi - nýttur sem geymsla í dag.
Hol með parketi á gólfi, hringstigi þar upp á efri hæð.
Efri hæð:
Opið eldhús og borðstofa, parket á gólfi, ágæt innrétting og eyja í eldhúsi, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél.
Rúmgóð stofa og sjónvarpsstofa með parketi, útgengt út stóran og góðan sólpall, 6 manna heitur pottur fylgir.
Svefnherbergisálma með tveimur fataskápum og parketi á gólfi.
Fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Þrjú minni herbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu og ágæt innrétting, handklæðaofn, hiti í gólfi.
Bílskúr:
Bílskúr er skráður 28,6 m² að stærð, steypt gólf, vinnubekkur, bílskúrshurð er timburhurð á braut.
Búið er að setja upp varmaveitukerfi í húsinu, varmaskiptir er í bílskúr.
Hellulagt bílastæði og stétt fyrir framan hús.
Sólpallur og heitur pottur frá 2024.
Framkvæmdir fyrri eiganda:
Þak á húsinu hefur verið endurnýjað í kringum 2015.
Eldhús líklega uppgert í kringum 2010 sem og bæði baðherbergi.