Fasteignaleitin
Opið hús:17. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 12. nóv. 2026

Sólarsalir 5

HæðHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
147.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
777.402 kr./m2
Fasteignamat
94.550.000 kr.
Brunabótamat
77.650.000 kr.
Mynd af Glódís Helgadóttir
Glódís Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2003
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2263055
Landnúmer
186879
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
síðan húsið var byggt
Raflagnir
síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
sÍðan húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Engir gallar sem stm.Hraunhamars er kunnugt um.
Hraunhamar fasteignasala kynnir glæsilega bjarta og skemmtilega 4ja  herbergja 120,8 m2 íbúð á efstu hæð (2.hæð) auk 27 m2 bílskúr. í viðhaldsléttu 3-býli.  Samtals er eignin því 147,8 m2. Staðsetning  er aldeilis frábær þar sem stutt er í golfvöll, og í göngufæri við sundlaug og skóla. Yfir byggðar suðursvalir. Afar fallegt útsýni til suðurs og vesturs.

Íbúðin/hæðin er einstaklega vel skipulögð og með fallegu útsýni til suðurs og vesturs. Íbúðin skiptist í forstofu, þvottaherbergi, barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, stofu og eldhúsi sem er opið inn í stofu. Búið er að minnka stofurýmið fyrir þriðja svefnherbergið. Nægt stofupláss er samt fyrir hendi. Út frá stofu er svo 6,6 m2 svalir með svalalokun sem snúa til suðurs. Sér geymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjóla-og vagngeymslu.

Nánari lýsing.
Komið er inn í parketlagða með innbyggðum fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhúsið er opið inní stofu, með fallegri innréttingu með flísum á milli skápa, Miele ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, Miele karamik helluborði og viftuháfi yfir, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Granít/kvars plötur í innrétingu og eyju.
Stofan er parketlögð, björt og rúmgóð með stórum gluggum og útgengt á flísalagðar suðursvalir með svalalokun. 
Hjónaherbergið er rúmgott með fataskáp.
Barnaherbergið er einnig rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, baðkar og sturta, nýjar innréttingar, opnanlegur gluggi.
þvottaherbergið er flísalagt  með góðum innréttingum þar sem gert er ráð fyrir frystiskáp, og innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Opnanlegur gluggi.

Bílskúr með rafdrifnum opnara, einnig er gönguhurð, heitt vatn, rafmagn og kalt vatn .
Í sameign er góð sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Upplýsingar frá seljanda:
-Ný gólfefni, harðparket frá Harðviðarval og gólflistar í stíl, nýjar flísar úr Byko inná baði.
-Nýjar innihurðir frá Byko
-Ný eldhúsinnrétting og baðinnrétting frá Fríform 
-Steinn frá S Helgason á eldhúsi ásamt innfelldu spanhelluborði frá Bora sem er með innbyggðri viftu.
-Innbyggður ísskápur og uppþvottavél keypt nýtt 2024
Bætt við aukaherbergi í stofurými.
Viðhald á húsi að utan:
Gluggar voru málaðir að utan í sumar 2026, annars er húsið viðhaldslétt.

Forstofa: Parketlögð og skápar frá HTH.
Baðherbergi: Fallegt flísalagt baðherbergi með innréttingu frá Fríform ásamt sturtu með innbyggðum blöndunartækjum og glugga.
Stofa og borðstofa: Parketlagðar og bjartar mynda rúmgott og bjart alrými.
Sjónvarpshol: Parketlagt 
Eldhús: Innrétting frá Fríform, gott skápapláss, eyja með innbyggðu helluborði og steinn frá S helgason. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi 1:  parketlagt svefnherbergi með skápum frá hth.
Svefnherbergi 2: parketlagt hjónaherbergi með skápum frá hth.
Svefnherbergi 3: parketlagt svefnherbergi, 
Þvottaherbergi: Dúkur á golfi og innréttingar frá Fríform. 
Svalir: Yfirbyggðar flísalagðar suðvestur svalir.
Geymsla: Sérgeymsla á jarðhæð.
Bílskúr: 27 m² bílskúr með sér gönguhurð líka.
 
Innraskipulag eignar hefur verið örlítið breytt frá samþykktri teikningu.

Þetta er glæsileg mikið endurnýjuð sérhæð með bílskúr á þessum vinsæla stað í salahverfinu Kópavogi sem vert er að skoða frekar ! Eignin er samtals 147.8 fm.

Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/04/202487.650.000 kr.95.900.000 kr.147.8 m2648.849 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2003
27 m2
Fasteignanúmer
2263055
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.650.000 kr.

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víkurgata 2
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Víkurgata 2
Víkurgata 2
210 Garðabær
159,9 m2
Fjölbýlishús
312
872 þ.kr./m2
139.500.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb309
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:15. nóv. kl 14:00-15:00
Vetrarbraut 2-4 íb309
210 Garðabær
119,4 m2
Fjölbýlishús
413
1004 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 406
Strandgata 26 íb. 406
220 Hafnarfjörður
140,2 m2
Fjölbýlishús
413
1105 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 702
Bílastæði
Efsta hæð
Strandgata 26 íb. 702
220 Hafnarfjörður
153,6 m2
Fjölbýlishús
413
1367 þ.kr./m2
209.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin