Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt einbýlishús í byggingu, Lindahraun 10, 810 Hveragerði.
Eignin telur anddyri, fjögur svefnherbergi, þar af eina hjónasvítu, tvö baðherbergi, stofu, eldhús/borðstofu, sjónvarpshol, þvottahús og bílskúr.
Eignin er skráð 218,5 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Skráning segir íbúðarhluta vera 175,3 m² og bílskúrinn er skráður 43,2 m².
** Eignin verður afhent nýjum eigendum tilbúin til málunar og innréttinga. **
Eignin stendur innst í tíu húsa botnlanga, með fallega fjallasýn. Stutt í ósnortna nátturu og fallegar gönguleiðir.
Lóðin er 720,0m². Bílastæði innan lóðar gera ráð fyrir þremur bílum.Sjá staðsetningu hér.Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Úrdráttur úr byggingarlýsingu:
Útveggir: Útveggir eru timburveggir, klæddir að utan með 9mm gufuopnum krossvið. Ysta klæðning er slétt dökk álklæðning með skillistum. Að innan eru veggir klæddir með spónaplötum í innra lagi og gifsplötum í ytra. Veggir verða sparslaðir og grunnmálaðir.
Þak: Þak er timburþak, annars vegar með 5° halla og hins vegar 14° halla. Ysta klæðning er ábræddur þakdúkur (tjörudúkur). Klæðning að innan er loftaþiljur. Einangrun þaks er 220mm þakull með pappa.
Gluggar og hurðir: Gluggar og hurðir eru ál/tré gluggar, dökkir að lit.
Gólf: Botnplata er járnbent steinsteypa, staðsteypt á burðarhæfa grús. Undir botnplötu er einangrað með 100mm 16kg/m3 plasteinangrun og í bílskúr skal einangra með 100mm 24kg/m3
Innveggir: Léttir veggir eru gifsveggir, vikursteinn eða léttsteypusteinn. Veggur milli íbúðar og bílskúrs er léttur timburveggur
Eldvarnir: Eldvarnarveggur milli íbúðar og bílskúrs skal vera EI-60þ Íbúð er sjálfstætt brunahólf. Bílskúr er sjálfstætt brunahólf.
Lagnir og lagnaleiðir: Lagnainntök eru í bílskúr. Hitakerfi er ísteyptur gólfhiti. Neysluvatnslagnir eru almennt ísteyptar rör í rör kerfi og einnig í innveggjum þar sem það á við. Raflagnir eru í innra byrði einangrunar útveggja og færðar innfellt í loftum og veggjum. Loftræsing lokaðra rýma skal vera með vélrænni loftræsingu um þak eða gegnum útveggi.
Algild hönnun: Íbúðum er auðvelt að breyta m.t.t. aðgengis og skv. þörfum hreyfihamlaðra og sjónskertra
Eignin verður afhent nýjum eigendum tilbúin til málunar og innréttinga, lóð ófrágengin.Aðrar eignir sem við seljum má sjá
hér.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.