Domusnova og Ingunn Björg kynna bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja hæð auk bílskúrs í fjórbýlishúsi við Rauðalæk 18. Falleg eign á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Laugarneshvefinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Um er að ræða rúmgóða íbúð á 2. hæð auk frístandandi bílskúrs sem innréttaður hefur verið sem íbúð ( núverandi leigutekjur eru 150.000 kr á mánuði en hækka í 200.000 1.jan ).
Skv. HMS eru heildarfermetrar skráðir 111,3 fm2 þar af er bílskúr 24,5 fm2.Íbúðin samanstendur af holi, 3 svefnherbergjum, stofu / borðstofu, eldhúsi, baðherbergi, geymslu í sameign hússins og bílskúr sem útbúinn hefur verið sem íbúð.
Frábær staðsetning á horni Rauðalæks og Bugðulæks þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaugina og verslunarkjarnann þar sem m.a. má finna Kaffi Laugalæk, Matland, Brauð og co, Krambúðina, Pylsumeistarann og Ísbúð Laugalæks.
Nánari upplýsingar veitir:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.isNánari lýsing eignar:
Hol: Með fataskáp.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús með tveimur gluggum. Falleg hvít innrétting með eikarborðplötum, flísar á milli efri og neðri skápa og upp vegg að mestu við helluborð. Ofn í vinnuhæð, helluborð, háfur, borðkrókur. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Fallegt og bjart rými með gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.
Herbergi 1: Rúmgott, parket á gólfi. Útgengt á suður svalir. Þetta rými er í dag nýtt sem herbergi en var áður borðstofa. Auðvelt að breyta til baka í fyrra horf.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart með stórum glugga, parket á gólfi.
Herbergi 3: Rúmgott og bjart með tveimur gluggum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting undir vaski, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, salerni.
Geymsla: Í sameign.
Þvottahús: Í sameign þar sem hver er með sína vél.
Bílskúr / Íbúð: Rýmið hefur verið útbúið sem studio íbúð sem skiptist í bjart alrými með fjórum gluggum. Alrými með svefnaðstöðu , góð eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu og vask. Tengi fyrir þvottavél. Gönguhurð er inn í íbúiðina frá garði.
Húsið: Eftirfarandi upplýsingar voru til staðar í söluyflirliti frá fyrri eigendum. Húsið allt múrviðgert og málað árið 2006. Árið 2010 voru frárennslislagnir undir plötu í kjallara endurnýjaðar ásamt heita og kaldavatnslögnum frá húsi að bílskúrum. Rafmagnstafla í sameign var endurnýjuð 2022 ásamt því að rafmagn í sameign var yfirfarið. Framkvæmdar voru sprungufyllingar utanhúss og dælt í glugga þar sem þörf var árið 2024.
Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.