BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HRAUNHÓLAR 5 , 800 Selfoss. Fjögurra herbergja raðhús með innbyggðum bílskúr í grónu hverfi á Selfossi.
Húsið stendur við botnlanga, suðurgarður, stutt í alla helstu þjónustu m.a. leikskóla og grunnskóla. Ýtið hér fyrir staðsetningu. Skipulag eignar: Anddyri, stofa og borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, hol, þvottahús og bílskúr, geymsla.
Nánari lýsing: Anddyri með tvöföldum fataskáp, innangengt er í forstofuherbergi frá anddyri.
Stofa og borðstofa eru saman í rými, útgengt er frá stofuhluta út á
hellulagða verönd til suðurs.
Eldhús, með rúmgóðri innréttingu AEG helluborð, háfur og ofn í vinnuhæð. AEG uppþvottavél getur fylgt ef vill.
Svefnherbergin eru þrjú.Hjónaherbergi er með fjórföldum fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö, bæði þeirra eru með einföldum fataskáp.
Baðherbergi er rúmgott flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar, sturta, vegghengt salerni, rúmgóð vask innrétting og handklæðaofn.
Hol, þaðan er gengið inní baðherbergi, svefnherbergi og þvottahús.
Þvottahús með innréttingu, hækkun fyrir tvær vélar, stálvaskur í borði, innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi.
Bílskúr, rafræn opnun tvær fjarstýringar fylgja, rafrænn hnappur á vegg í bílskúr, inntök eru í bílskúr, rafmagnstafla og gólfhitagrind, geymsla er innst í bílskúr, útgengt er úr bakhluta bílskúrs út í bakgarð.
Gólfefni: Eikarparket er á stofu, borðstofu, eldhúsi, holi, hjónaherbergi og öðru herberginu. Flísar eru á anddyri, baðherbergi, forstofuherbergi, þvottahúsi og bílskúr, geymslu
Húsið er upphitað með
gólfhita, Danfoss stýringar á veggjum.
Gardínur, strimlagardínur og sólargardínur fylgja.
Raðhúsalengjan Hraunhólar 1-7 samanstendur af 4 raðhúsaíbúðum.
Húsið er timburhús, klætt að utan með hvítri Duropalklæðningu, aluzink á þaki. Gróin garður, Hellulögð verönd u.þ.b. 40 m² er í bakgarði til suðurs.
Möl er í bílaplani, pláss fyrir tvær bifreiðar, aðkoma að húsi er hellulögð, sorptunnuskýli fyrir eina tunnu er framan við hús.
Skráning hússins hjá HMS:Stærð: Íbúð 108.6 m². Bílageymsla 36.7 m². Samtals 145.3 m².
Brunabótamat: 67.400.000 kr.
Fasteignamat: 76.000.000 kr
Byggingarár: 2008
Byggingarefni: Timbur.