Fasteignaleitin
Skráð 20. okt. 2026

Hofgarðar 22

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
386 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
290.000.000 kr.
Fermetraverð
751.295 kr./m2
Brunabótamat
194.400.000 kr.
Byggt 1987
Svalir
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20674281
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegt 386 fm einbýlishús á tveimur hæðum við Hofgarða 22 á Seltjarnarnesi. Húsið stendur innarlega í Hofgörðum og keyrt er upp innkeyrslu að húsinu. Húsið stendur mjög hátt í götunni á 1173 fm eignarlóð. Glæsilegt útsýni er úr húsinu til vesturs og norðurs m.a. fjalla- og sjávarsýni. Húsið stendur rétt við Valhúsahæð þar sem er mikil náttúrufegurð. Garðurinn er að hluta til með mosagróðri, stórum steinum og lágreistum trjágróðri.  Stór timburverönd er meðfram húsinu sunnan- og austanmegin. 

Húsið skiptist þannig: Aðalhæð: stórar stofur með mikilli lofthæð, sjónvarpshol, eldhús, 3-4 herbergi (fjögur herbergi skv. teikningu), baðherbergi/þvottahús, snyrting og forstofa. Fallegur lokaður arinn er í stofum. Stórar svalir til vesturs og norðus eru út af stofum. Neðri hæð: Sér inngangur er á neðri hæð hússins en einnig er innangengt á milli hæð. Á neðri hæð hefur verið innréttuð 2ja herbergja íbúð*.  Einnig er mjög rúmgóður bílskúr á neðri hæð. Hiti er í hluta af bílaplani. 

Húsið verður sýnt FIMMTUDAGINN 29. okt. n.k.
Bókið skoðun hjá: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is eða Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali.


Aðalhæð:
Forstofa: komið er í forstofu með skápum. Steinteppi er á gólfi og hiti í gólfi.
Snyrting: Snyrting er inn af forstofu. Gólf er flísalagt. Hiti í gólfi. Gluggi er á snyrtingu.
Hol: Rúmgott parketlagt hol er í miðju hússins sem tengir saman rými hússins. Þaðan er gengið á neðri hæð hússins.
Stofur: Mjög rúmgóðar stofur með mikilli lofthæð. Lokaður arinn er í stofum. Frá stofum er gengið út í garð á timburverönd. Einnig eru mjög stórar svalir til vesturs og norðurs út af stofu m. Glæsilegt útsýni m.a. sjávar- og fjallasýn.
Sjónvarpsrými: Parketlagt sjónvarpshol er við hliðina á stofum.
Eldhús: Eldhúsið hefur nýlega verið endurnýjað. Mjög rúmgóð hvít sérsmíðuð innrétting frá Björninn Innréttingar. Steinn á vinnuborðum. Eldhúsið var áður lokað en hefur verið opnað fram í holið.
Í svefnálmu eru þrjú herbergi (fjögur herbergi samkvæmt teikningu) og baðherbergi/þvotthús.
Hjónaherbergi: Parketlagt hjónaherbergi með skápum.
Barnaherbergi I: Rúmgott barnaherbergi með skápum.
Barnaherbergi II: Mjög rúmgott barnaherbergi með skápum (tvö herbergi samkvæmt teikningu).
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi. Baðkar með sturtu í. Þvottahúsið er inn af baðherbergi. Gluggi er á baðherbergi. 
Neðri hæð:
Sér inngangur er á neðri hæð hússins en einnig er innangengt á milli hæða.
Forstofa: Flísalögð forstofa með skápum.
Stofa: Dúklögð stofa.
Eldhús: Góð innrétting í eldhúsi (frá árinu 2000). Gólf er dúklagt. 
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu (frá árinu 2000). 
Herbergi: Gengið í herbergi frá forstofu. Skápar eru í herbergi. Gólf er dúklagt.

Bílskúr: Mjög rúmgóður flísalagður bílskúr með góðu geymsluplássi. Innangengt er í bílskúrinn frá neðri hæð.

Framkvæmdir innanhúss:
Eldhús á aðalhæð hússins var endurnýjað árið 2020 og opnað fram í hol. Á sama tíma var parket í svefnálmu og herbergjum á aðalhæð endurnýjað. Árið 2015 var parket endurnýjað í stofum, holi og sjónvarpsrými. 
Framkvæmdir utanhúss: Húsið var málað að utan árið 2020. Gert var við svalagólf og svalirnar flotaðar árið 2020. Þakið var viðgert fyrir u.þ.b. 10 árum síðan. 

Frábær staðsetning rétt hjá Valhúsahæð þar sem er mikil náttúrufegurð. Örstutt í leikskóla, skóla, sundlaug, heilsurækt, heilsugæslu, verslanir og helstu þjónustu. Fallegt útivistarsvæði og gönguleiðir í næsta nágrenni.


 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smárahvammur 9
Skoða eignina Smárahvammur 9
Smárahvammur 9
220 Hafnarfjörður
424,4 m2
Einbýlishús
1045
Tilboð
Skoða eignina Vattarás 4
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Vattarás 4
Vattarás 4
210 Garðabær
348,7 m2
Einbýlishús
625
743 þ.kr./m2
259.000.000 kr.
Skoða eignina Bollagarðar 57
Bílskúr
Skoða eignina Bollagarðar 57
Bollagarðar 57
170 Seltjarnarnes
246,1 m2
Raðhús
612
690 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Súluhöfði 27
Bílskúr
Skoða eignina Súluhöfði 27
Súluhöfði 27
270 Mosfellsbær
401,6 m2
Einbýlishús
1047
735 þ.kr./m2
295.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin