Fasteignaleitin
Skráð 23. des. 2025

Hörpuland 7

Jörð/LóðNorðurland/Akureyri-601
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
90.900.000 kr.
Fasteignamat
1.425.000 kr.
Fasteignanúmer
2529587
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Leigulóð

EIGNAVER 460-6060

Hörpuland 7 Hálönd - Nýbygging.          Afhending vor 2026

Sérlega vandað heilsárshús á fallegum stað ofan Akureyrar, einstakt útsýni og staðsetning rétt við skíðaparadís Akureyringa
Húsið skiptist í forstofu, geymslu, snyrtingu, þrjú svefnherbergi, stofu/eldhús sem eru eitt rými, baðherbergi með sturtu.

****  Eignin er merkt með gulum hring á yfirlitsmynd **** 
**** ATH Myndir eru úr sambærilegu húsi ****

 
Forstofa er rúmgóð og útbúin snögum, á gólfi er flísar.
Snyrting með upphengdu salerni, innréttingu með vaska, sturtuklefi, á gólfi eru flísar.
Svefnherbergi eru þrjú, með  fataskápum, á gólfi eru flísar.
Stofa og eldhús er eitt rými, innréttingar eru úr harðplasti, með eldhúsinnréttingu fylgir bakaraofn og keramikhelluborð af viðurkenndri gerð.  Á gólfum eru flísar, úr stofu er hægt að ganga út á steypta verönd.
Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, innrétting úr harðplasti með vaska, á gólfi eru flísar, úr baðherbergi er gengið inn rými þar sem er heitur pottur.
Geymsla í geymslu eru inntök húss og loftskiptibúnaður. Gólf er flísalagt. Góð innrétting þar gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur í borði.

Frágangur utanhúss
Útveggir: Veggirnir eru einangraðir að utan með 100mm steinullareinangrun (150kg/m3) sem er skrúfuð í einingarnar í gegnum 21x70mm, lóðréttan krossviðarrenning c/c600mm. Á renningana festist loks 4mm slétt plötuklæðning (Alucobond).
Gluggar og hurðir: Gluggar og hurðir verði ýmist ál-timbur, timbur eða álkerfi.
Þakgerð: Þakplata er úr gegnheilum 16cm timbureiningum. Þakhalli er þannig að þakið hallar horn í horn með hæsta punkt yfir stofu en lægsta yfir geymslu. Ofan á þakplötu er bræddur pappi, svo 180mm harðpressuð steinullareinangrun og loks tvö lög af þakpappa af viðurkenndri gerð.
Sólpallar og stéttar: Sólpallur er steyptur með snjóbræðslu. Stétt er steypt og útbúin snjóbræðslu. Skjólveggir eru úr forsteyptum einingum.
Lóðir: Lóðir eru jafnaðar og í þær sáð grasfræi.  Ath. sérstakar kvaðir eru í lóðaleigusamningi um gróðursetningu á svæðinu.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu

Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is
Begga           s: 845-0671    /begga@eignaver.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignaver fasteignasala ehf
http://www.eignaver.is

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Birkiholt 6
Skoða eignina Birkiholt 6
Birkiholt 6
225 Garðabær
94.9 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 3 íb. 501
Hallgerðargata 3 íb. 501
105 Reykjavík
61.8 m2
Fjölbýlishús
211
1212 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb305
Eskiás 10 íb305
210 Garðabær
87.2 m2
Fjölbýlishús
32
997 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 47
Skoða eignina Drápuhlíð 47
Drápuhlíð 47
105 Reykjavík
87.3 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
847 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin