SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *DRAUMAEIGN GOLFARANS* *NÝJAR ÍBÚÐIR Í LYFTUHÚSNÆÐI* *STÆÐI Í BÍLAKJALLARA OG GEYMSLA* *FRÁBÆR STAÐSETNING Í GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARÐGAÐUR*Nýjar og vandaðar íbúðir á besta stað í lyftuhúsi í Villamartin golfparadísarsvæðinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. 2 svefnherbergi með fataskápum og 2 baðherbergi. Rúmgott eldhús opið við stofu, svalir frá stofu og stór garður fylgir íbúðum á jarðhæð. Glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður. Stæði í bílakjallara og geymsla, ásamt sér hjólageymslu.
Frá forstofu er gengið inn í bjart opið rými með eldhúsi sem er opið við stofu. Gengið er út á svalir, og á jarðhæð er gengið út í stóran 80 fm sérgarð. Eldhús afhendist fullbúið með öllum tækjum. Svefnherbergin eru tvö, með fataskápum og annað þeirra með sér baðherbergi. Bæði baðherbergin eru flísalögð, með góðri innréttingu og sturtu. Eigninni fylgir sér geymsla, stæði í bílageymslu, og hjólageymsla sem einnig er hægt að nýta fyrir mótorhjól. Miðstýrt innfelt loftræstikerfi er innan íbúðar sem hægt er að nota bæði til að kæla og hita.
Um er að ræða vel skipulagðar nýjar eignir í frábærlega staðsettri nýbyggingu, einstakt tækifæri til að eignast íbúð í hjarta Orihuela Costa í göngufæri við verslanir, veitingastaði og golfvelli. Eignirnar eru til afhendingar í september 2026.
Allar upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. Sími 893 2495Stutt í La Fuente verslunar og veitingahúsakjarnann, Mercadona matvöruverslunina og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlegi einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isEiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, útsýni, air con, bílastæði, verönd, sér garður, golf,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,