Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/bjarni@remax.is) kynnir í sölu vel skipulagt fimm-sex herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr við Eyjahraun 3, Þorlákshöfn. Húsið er byggt úr timbri árið 1973, en bílskúrinn úr st+timbri árið 1980. Íbúðarrými er skráð 128,8fm ásamt 49,9fm bílskúr, samtals 178,7fm. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslu/lítið herbergi. Lóðin er 838fm. Húsið er í botnlangagötu í rólegu og barnvænu hverfi. Tilvalin eign fyrir stækkandi fjölskyldu. Nánari lýsing eignarinnar:
Komið er inn í stóra flísalagða forstofu sem tengir íbúðarhúsnæðið og bílskúrinn saman. Þaðan er gengið inn í íbúðarhúsið, innagengt er í bílskúrinn og í bakgarð. Gangur með þvottahúsi og geymslu/herbergi merð glugga. Stór og björt stofa og borðstofa með útgengt út í garð. Eldhús er inn af borðstofu, það er með eldri innréttingu, flísar á milli, ofn, háfur og nýtt helluborð, korkur á gólfi. Svefnherbergisgangur með fjórum herbergjum. Baðherbergi með sturtuklefa, gluggi, dúkur á gólfi. Bílskúrinn er 49,9fm, aukin lofthæð, góð innkeyrslu hurð, bæði rafmagn og heitt og kalt vatn. Garðurinn er gróinn.
Upplýsingar frá seljanda:
Þak á bílskúr og húsi og málað 2024.
Húsið, gluggar, hurðar og þakskegg málað 2024.
Bílskúr klæddur að innan nema loftið 2024.
HÉR ER UM AÐ RÆÐA VEL STAÐSETT FJÖLSKYLDUHÚS - STUTT ER Í GRUNN- OG LEIKSKÓLA, SUNDLAUG OG ÍÞRÓTTAHÚS, VERSLANIR, ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU OG NÁTTÚRUNA - EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.