Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu gott og vel skipulagt 5 herbergja miðjuraðhús með rúmgóðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 167.9 fm. þar af er íbúðarhluti 125.4 fm. og bílskúr 42.5 fm. Húsið er staðsett í rólegri botngötu og stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.
AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING.Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu / borðstofu, hol / gangur, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og gestasalerni, bílskúr / þvottahús / geymsla.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing: Anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð, úr stofu er útgengt út á suðvestur sólpall á baklóð, parketi á gólfi,
Eldhús: Eldri innrétting, helluborð og háfur, bakarofn, ísskápur / uppþvottavél / örbylgjuofn fylgja með, parket á gólfi.
Búr: Innangengt í bílskúr, parket á gólfi.
Hol / svefnherbergisgangur: Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, hvítir fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott, hvítur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott, eldri innrétting, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Gestasalerni: Inn af forstofu, hillur, málað gólf.
Bílskúr / þvottahús / geymsla: Rúmgóður 42,5 fm. bílskúr, rafdrifin bílskúrshurðaopnari, gönguhurðir út í innkeyrslu og út á baklóð, málað gólf. Í geymslu er búið að útbúa þvottahús með sturtu, innrétting, handklæðaofn, málað gólf.
Húsið: Er steypt og byggt 1989.
Lóð: Gróinn 349,8 fm. frágengin lóð. Framan við húsið er garður með grasi og trjám, innkeyrsla er hellulögð og hellulögð stétt að húsi. Á baklóð er suðvestur sólpallur.
ATHUGIÐ AÐ SELJANDI HEFUR EKKI BÚIÐ Í HÚSINU OG ÞEKKIR Þ.A.L. EKKI ÁSTAND ÞESS TIL HLÍTAR. KAUPENDUR ER ÞVÍ HVATTIR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA MEÐ ÞAÐ Í HUGA OG LEITA SÉR AÐSTOÐAR FAGMANNS.Hér er um að ræða góða og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.