RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja 85,0 fm. íbúð á fyrstu hæð í góðu lyftuhúsi á besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er með aukinni lofthæð og skiptist í forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, eitt rúmgott svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Vestur svalir með útsýni til sjávar. Sérgeymsla íbúðar 9,7 fm. er staðsett í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu. Myndavélakerfi er í sameign og aðgangsstýring inn í húsið. Eigninni fylgir gott bílastæði í lokaðri bílgeymslu. Húsvörður er í húsinu. Góð eign á eftirsóttum stað í Skuggahverfinu. Stutt í alla helstu þjónustu og verslanir, einnig fallegar göngu og hjólaleiðir við sjávarsíðuna.KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari lýsing: Gengið er inn í
forstofu með góðu skápaplássi, flísar á gólfum. Þaðan er gengið inn í rúmgott og bjart alrými.
Eldhús er hálf-opið til stofu, með góðri viðarinnréttingu og flísum á milli skápa. Nýlegt helluborð, vifta og bökunarofn í vinnuhæð. Parket á gólfum.
Stofa er parketlögð í opnu og björtu rými með gólfsíðum gluggum og með útgengt út á 6,5 fm.
vestur svalir með útsýni til sjávar.Svefnherbergi er rúmgott og bjart með mjög góðu skápaplássi. Gólfsíðir gluggar og einnig útgengt út á svalir.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtubaðkari, viðarinnréttingu og góðum speglaskáp. Einnig er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla íbúðar er 9,7 fm.,staðsett í sameign ásamt
sameiginlegu þvottahúsi, með sér rafmagnsmæli fyrir íbúð.
Hjóla- og vagnageymslu jafnframt í sameign.
Bílastæði íbúðar merkt 09B034 er í lokaðri bílgeymslu,keyrt inn frá Skúlagötu. Þvottaaðstaða er til staðar og grunnstöð fyrir rafmagnsbíla.
Nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur Skuggahverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar. Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við leikhús, kvikmyndahús og tónlistarhús býður upp á einstaka möguleika. Fjölmörg kaffihús og fjölbreyttir veitingastaðir eru í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.