Fasteignaleitin
Skráð 27. mars 2026

Flekkudalsvegur 7

SumarhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
119.7 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
1.085.213 kr./m2
Fasteignamat
79.050.000 kr.
Brunabótamat
70.600.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2085775
Landnúmer
125963
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já og sólpallur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Ekki er búið að setja upp handrið á svalir. Glerhandrið fylgir með.
Flekkudalsvegur 7, 276 Kjós. Glæsilegt sumarhús á vatnalóð við Meðalfellsvatn í Kjós.

Jón Smári Einarsson lgf. s. 8606400 og Fasteignaland kynna eignina Flekkudalsvegur 7, 276 Kjós, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 208-5775 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Flekkudalsvegur 7 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 208-5775, birt stærð 119.7 fm.

Sumarhús í landi Eyja I við Meðalfellsvatn. Lóðin er eignarlóð skráð 1.009 fm, grasigróin afgirt vatnalóð með glæsilegu útsýni yfir Meðalfellsvatn. Húsið stendur á steyptum súlum. Það er tengt hitaveitu og er neðri hæð hituð með gólfhita og ofnum á efri hæð. Ljósleiðari er í húsinu. Hér er um að ræða virkilega vandaða eign á eftirsóttum stað sem heillar á öllum árstíðum. 

Lýsing:
Forstofa
með góðu fatahengi. Við tekur hol/gangur þar eru tvö svefnherbergi, það fremra er með skáp en hitt með kommóðu, innst er baðherbergi með flísum á gólfi með “walk in” sturtu, handklæðaofni og skáparými með rennihurðum þar sem m.a. er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er frá holi út á suð-vestur sólpall þar sem er heitur pottur með gler skjólgirðingu. Frá holi er einnig gengið inn í sameiginlegt rými stofu og eldhúss. Stofan er opin og rúmgóð með fallegri frístandandi kamínu sem gefur notarlega stemmingu. Eldhúsið er með háum skápum með innbyggðum tvískiptum ísskáp og frysti ásamt bökunarofni þar við hliðina. Fyrir framan er eldhúseyja með granítplötu með vaski og keramik helluboðri og er hún með góðu skápaplássi. Undir stiga er lítil lokuð geymsla.

Gengið er upp á efri hæð frá holinu og upp í mjög rúmgott rými (sjónvarps stofa) þar inn af eru tvö svefnherbergi, bæði með lítilli borðaðstöðu. Úr rýminu er útgengt út á suðaustursvalir.

Öll rými í húsinu eru með gegnheilu eikar parketi á gólfi nema í holi fyrir framan baðherbergið sem er með flísum á gólfi og á einum vegg. Innifeld loftljós eru í öllu húsinu nema í svefnherbergjum, þar eru ljósakúplar.
Góður lerki sólpallur umlykur húsið. Góð aðkoma og næg bílastæði fyrir framan húsið. Með húsinu fylgir nýlegt bátaskýli ca. 18 fm. Sér bryggja fylgir einnig húsinu og er hún sett út á sumrin. 
Með fylgir vatnabátur Terhi 6020 árg 2015 með Suzuki 30 hp utanborðsmótor frá 2024 sem er eins og nýr keyrður aðeins 15 tíma. Tveir Icelander kayjakar, annar 2 manna og hinn 1 manns, "sit on top" bátar og 4 þurrgallar. Einnig nýtt vandað sauna-hús fyrir 6 manns með andyri og verður það afhent skv. samkomulagi. Á lóðinni er 20 feta gámur, notaður sem geymsla.

Árgjald sumarhúsafélags er um kr. 15.000.

Þetta er virkilega falleg og vel umgengin eign á einum besta stað við Meðalfellsvatn.

Allt innbú utan persónulegra muna fylgir með.

Staðsetning og nærumhverfi:
Um er að ræða einstaka eign á frábærum stað við Meðalfellsvatn þar sem akstur frá Reykjavík er ca. 30 mínútur. Stutt í þjónustu og fallegar gönguleiðir.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/04/202347.400.000 kr.48.000.000 kr.119.7 m2401.002 kr.Nei
14/06/201919.450.000 kr.29.000.000 kr.119.7 m2242.272 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (58)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fífuvellir 31
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:31. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Fífuvellir 31
Fífuvellir 31
221 Hafnarfjörður
179.9 m2
Parhús
423
705 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Litlavör 3
Skoða eignina Litlavör 3
Litlavör 3
200 Kópavogur
180.2 m2
Parhús
614
813 þ.kr./m2
146.500.000 kr.
Skoða eignina Þórsstígur 27
Skoða eignina Þórsstígur 27
Þórsstígur 27
805 Selfoss
165.6 m2
Sumarhús
534
881 þ.kr./m2
145.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 407
Strandgata 26 íb. 407
220 Hafnarfjörður
126.9 m2
Fjölbýlishús
312
1181 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin