Fasteignaleitin
Skráð 19. sept. 2026

Grensás 28

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
102 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
489.216 kr./m2
Fasteignamat
2.990.000 kr.
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2344095
Landnúmer
205186
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna: *** AFAR FALLEGUR 102m2 BÚSTAÐUR Á GRÓÐURSÆLU LANDI RÉTT FYRIR UTAN SELFOSS ***
Fasteignasalan TORG kynnir eignina Grensás 28, 805 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 234-4095 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson Löggiltur fasteignasali., í síma 623-1717, tölvupóstur svavar@fstorg.is.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS

Grensás 32 – 102 m² sumarhús í byggingu á 4.670 m² eignarlóð
Fallegt og vel skipulagt sumarhús í byggingu í landi Búrfells II. Húsið er 102 m² samkvæmt skráningu HMS og stendur á stórri 4.670 m² eignarlóð með fallegu útsýni. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgott alrými og gert ráð fyrir svefnlofti. Möguleiki er á að fá húsið afhent lengra komið.

Nánari lýsing eignar
Húsið
stendur á steyptri plötu með hitalögnum og verður klætt að utan með bandsöguðu timbri. Gert er ráð fyrir ál/tré gluggum og loft-í-vatn varmadælu til upphitunar.
Frágangi á þaki er lokið og er það klætt torfi. Húsið afhendist með sólpalli, auk þess sem bílastæði og aðkoma verða frágengin.
Að innan afhendist húsið einangrað og plastað og með rafmagnsgrind tilbúna. Möguleiki er fyrir kaupendur að semja um að fá húsið afhent lengra komið.
Heimtaugagjöld vegna kalds vatns og rafmagns verða greidd og rotþró verður frágengin.
Skipulag samkvæmt teikningum
Forstofa: Góð forstofa við inngang hússins.
Stofa og eldhús: Bjart og rúmgott alrými þar sem stofa og eldhús mynda skemmtilega heild. Góð lofthæð gefur rýminu aukinn glæsileika og birtu.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með sér baðherbergi.
Herbergi: Tvö önnur góð svefnherbergi.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi eru samkvæmt teikningum, annað þeirra inn af hjónaherbergi.
Tæknirými og geymsla: Sér tæknirými og geymsla.
Svefnloft: Gert er ráð fyrir skriðlofti sem nýtist sem svefnloft og gefur húsinu skemmtilega viðbótarmöguleika.

Lóð og staðsetning
Lóðin er 4.670 m² eignarlóð með fallegu útsýni og góðu rými í kringum húsið. Árgjald í félag sumarhúsaeigenda á svæðinu er 25.000 kr. á ári.
Staðsetningin er góð fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar og náttúru en jafnframt hafa fjölbreytta afþreyingu innan seilingar. Stutt er til margra af þekktustu áfangastaða Suðurlands, meðal annars Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Keriðs.
Í nágrenninu eru jafnframt fjölbreyttir möguleikar til útivistar, svo sem veiði, sund, golf og fallegar gönguleiðir.
Hér er um að ræða spennandi tækifæri til að eignast nýtt og vel skipulagt sumarhús á stórri eignarlóð á fallegum stað á Suðurlandi. Kaupendum stendur jafnframt til boða að semja um frekari frágang hússins
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensás 34
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 34
Grensás 34
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
43
480 þ.kr./m2
49.000.000 kr.
Skoða eignina Grensás 32
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 32
Grensás 32
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
413
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Grensás 30
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 30
Grensás 30
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
413
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Grensás 26
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 26
Grensás 26
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
413
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin