Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Skálagerði 5
Glæsilegt, mikið endurnýjað og virkilega vel staðsett 7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með sambyggðum bílskúr í Gerðahverfi á Brekkunni innst í botlangagötu. Eignin er samtals 244,4 fm. þar af er bílskúr 44,9 fm.
Eignin skiptist í á efri hæð sem er 142,1 fm., forstofu, geymslu (sem áður var snyrting), eldhús, stofu og borðstofu, sjónvarpshol, 4 svefnherbergi, baðherbergi og gang. Á neðri hæð er bakdyrainngangur, góð forstofa, hol sem hægt er að loka af sem geymslu, svefnherbergi, snyrting, þvottahús auk bílskúrs.
Efri hæð:
Forstofa er með parket á gólfi og hljóðdempandi veggjaþiljum.
Geymsla sem áður var snyrting er inn af forstofu. Þar er lúga upp á loft.
Eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpshol er saman í opnu og mjög björtu rými með parket á gólfi.
Eldhús er nýlega endurnýjað með hvítri innréttingu frá IKEA. Bakaraofn í vinnuhæð, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél. Mjög mikið bekkjar- og skápapláss.
Stofa og borðstofa er samliggjandi en upptekin loft eru í stofu.
Sjónvarpshol er við endan á herbergisgang. Þar er útgengt út á nýlegan timburpall sem snýr til suðvesturs og því mjög sólrík verönd.
Svefnherbergi eru fjögur á herbergisgangi. Öll með parket á gólfi og góðir fataskápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi var allt endurnýjað nýlega, með flísar á gólfi og vatnheldar veggjaþiljur. Góð innrétting í kringum vask, upphengt salerni, sturtugler við sturtu og handklæðaofn.
Stigi milli hæða er parketlagður.
Neðri hæð:
Forstofa er á neðri hæð, inn af forstofu er mjög gott rými sem nýtist sem opið fatahengi, var áður geymsla.
Hol neðri hæðar er rúmgott en var áður að hluta til geymsla. Hægt að breyta því með auðveldum hætti í fyrra horf.
Svefnherbergi er á neðri hæð, með parket á gólfi og opnanlegum fögum.
Snyrting var útbúin á neðri hæðinni við hlið þvottahúss. Þar er salerni og handlaug.
Þvottahús er með flísar á gólfi góðri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvask og ágætu bekkjarplássi. Lagnir fyrir gólfhita, inntök og fleira er í þvottahúsi.
Bílskúr er innangengur af neðri hæðinni. Innst í bílskúr er geymsla sem er lokuð af með léttum vegg. Rúmgóður bílskúr með rafdrifinni geymsluhurð og gluggum á austurhlið. Þar er einnig vaskur og gólf eru máluð.
Bæði óeinangraður geymsluskúr og gróðurhús með góðri vinnuaðstöðu er á lóð og fylgir. Þá er köld geymsla undir stiga að inngang efri hæðar.
Annað:
Eignin var mjög mikið endurnýjuð 2023:
-Gólfhiti og gólfefni (vinilparket) í öllu húsinu nema bílskúr
-Baðherbergi alveg endurnýjað
-Eldhús alveg endurnýjað
-Þvottahús endurnýjað
-Snyrting aflögð á efri hæð og gerð ný á neðri hæð
-Allt nýtt í rafmagnstöflu og alla tengla og rofa, þriggja fasa rafmagn komið inn og tengt
-Allar vatnslagnir nýjar
-Frárennslislagnir myndaðar og voru í lagi
-Loftaefni ný í stofu, önnur máluð
-Veggur sem skildi að eldhús fjarlægður og sett innfelld lýsing í sárið í loftinu
-Fataherbergi lokað sem var inn af hjónaherbergi og gert annað svefnherbergi
-Sólpallur endurnýjaður undirstöður og timbur og hann stækkaður 2024
-Gler endurnýjað í öllu húsinu 2025
-Settar nýjar skúfur í þakjárn í stað nagla 2025
-Varmaskiptir á neysluvatni
-Ljósleiðar
-Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl
-Garður er á tveimur stöllum
-Góð bílastæði eru við húsið, stæði fyrir framan bílskúr er með snjóbræðslu. Tvö stæði þar við hliðina eru steypt og sunnan við þau var jarðvegsskipt og stækkað og sett í það grasmottur með möl. Pláss fyrir fjóra bíla.
-Frábær staðsetning, stutt í verslun og þjónustu grunn- og leikskóla
-Skemmd í þakskyggni á norðvestur horninu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955