Háborg fasteignasala ehf, Jórunn lögg. fasteignasali, Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali og Hrefna Harðardóttir, aðstoðarmaður fasteignasala kynna Grensásveg 1F, nýbygging. Eign á 3. hæð 3ja herbergja, fallega innréttuð, gólfhiti, gólfsíðir gluggar, parket og sér þvottahús í 108 Reykjavík.
Nánari lýsing: Glæsileg 3ja herbergja með fallega innréttuðu alrými, eldhús með eyju sem hægt er að sitja og gengið út á suð-vestur svalir úr stofu, snýr að inngarði. Stofa er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum. Hjónaherbergið er einnig með gólfsíðum gluggum, það er mjög rúmgott og með góðum skápum. Barnaherbergið er einnig með gólfsíðum gluggum og góðum fataskápum. Baðherbergið er flísalagt að hluta, með sturtu sem gengið er beint inní, óbein lýsing fyrir ofan sturtu, skúffu innrétting undir handlaug og spegill fyrir ofan handlaug einnig með óbeinni lýsingu. Sér þvottahús innan íbúðar með góðri vinnuaðstöðu með skolvaski. Aðgengi að bílakjallara á þremur hæðum.
Birt stærð eignar er 90,6 fm samkvæmt HMS, þar af er 6,2 fm geymsla. Ath: kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. Afhending samhliða kaupsamningi.
Fjármögnun: Nýr valkostur í fjármögnun fasteignaBRÚ 20%. Kaupendur geta nýtt sér nýjan sjóð sem styður þá með því að fjárfesta með þeim allt að 20% -25% af kaupverði.
Deilibílar. eru í boði fyrir íbúa og starfsfólk, bæði fólksbílar og sendibílar sem er hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Einnig eru í bílakjallara hrað-hleðslustöðvar.
Erum til húsa í sama húsi við Grensásveg 1 6.hæð, getum sýnt með stuttum fyrirvara.
Húsið G1: er nýbygging og samanstendur af fimm stigahúsum samtals 181 íbúðir, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Í stigagangi G1F eru 33 íbúðir. Bílakjallari á þremur hæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. En um helgar er kr 120- á klukkustund.
Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.
Um er að ræða glæsilega íbúð með útsýni, gott birtuflæði, gólfhita, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum.
Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman.
Snjóbræðsla undir helstu göngustígum.
Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is, Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á tölvupósti kristin@haborg.is eða Hrefna Harðardóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 690-0751 eða hrefna@haborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.