Fasteignasalan TORG kynnir: Nýja 2ja herbergja íbúð með fallegu útsýni til fjalla með suð-vestur svölum.
Íbúð 302 er skráð 70,1fm þar af 5,6fm sérgeymsla.
Bókið einkaskoðun hjá Guðný Ösp, löggiltum fasteignasala, s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Kynntu þér heimasíðu verkefnisins hér.
Um er að ræða vel skipulagða 2ja herbergja íbúð, komið er inn í forstofu, til hægri er eldhús með veggfastri eyju. Til vinstri er baðherbergi með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgott hjónaherbergi 13,4 m2 með fataskápum. Stofa- og borðstofa í samliggjandi rými, útgengi á suð-vestur svalir frá stofu.
Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð, fjögurra hæða lyftuhúsum með bílakjallara. Frágangur er einstaklega vandaður, gólfhitakerfi, veglegar innréttingar með steinplötum í eldhúsi og flísalögðum votrýmum. Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að bílastæðum á lóð. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og íþróttastarf. Golfvellir GKG í göngufæri ásamt fallegri náttúru og útivist við Vífilstaðavatn og Heiðmörk. Allar nánari upplýsingar og skilalýsingu er hægt að nálgast hjá Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.