Fasteignaleitin
Skráð 14. okt. 2024
Deila eign
Deila

Laugarnesvegur 54

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
80 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
911.250 kr./m2
Fasteignamat
62.150.000 kr.
Brunabótamat
38.450.000 kr.
Byggt 1943
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2016912
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Óvitað
Raflagnir
Óvitað
Frárennslislagnir
Endurnýjað 2021
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir að hluta
Þak
Óvitað
Svalir
Upphitun
Hitaveita - ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Brotin rúða í stofu. Loftljós inn á baðherbergi þarfnast viðhalds.
Kvöð / kvaðir
Vakin er athygli á því að teikningin af íbúðinni er ekki alveg í samræmi við núverandi skipulag. 
RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á frábærum stað að Laugarnesvegi 54. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 80 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, þrjú svefnherbergi, stofu og baðherbergi.

Nánari lýsing:
Anddyri:
Parket á gólfi. Fatahengi og skóhilla á stigapallinum. 
Eldhús: Parket á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting með eikarborðplötu. Bakaraofn, helluborð, vaskur og innbyggð uppþvottavél. Gluggi í rýminu.
Stofa/borðstofa:  Parket á gólfi. Bjart og fallegt rými. Útgengt út á góðar svalir frá rýminu. Svalirnar eru yfirbyggðar að hluta.
Svefnherbergi 1: Parket á gólfi og fataskápur. Útgengt út á svalir frá frá rýminu. 
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi og fataskápur. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Hvít baðinnrétting með handlaug. Speglaskápur fyrir ofan innréttingu. Salerni. Sturtuklefi með glerþil. Gluggi í rýminu. 
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins, ásamt sameiginlegri geymslu.

Húsið og íbúðin hafa fengið gott viðhald í gegnum árin. Hér að neðan er að finna útlistun á helstu framkvæmdum síðustu ára:
2022 - Múr- og spurnguviðgerði á húsinu að utan
2021 - Frárennsli frá húsi og út í brunn endurnýjað
2020 - Eldhús endurnýjað og parket íbúðar.
2018 - Nýtt bárujárn á þakið framanvert
2017 - Stór hluti af gluggum hússins voru endurnýjaðir
2015 - Nýjar rennur á framhlið og bakhlið hússins

Húsið:

Húsið að Laugarnesvegi 54 er eitt af elstu húsunum í Laugarnesinu. Upphaflegur eigandi hússins fékk leyfi fyrir húsi á þessari lóð í janúar 1929 og í október sama ár var hann búinn að byggja þar einlyft hús með kjallara og porti, úr steinsteypu, sementssléttað að utan og með bárujárnsklæddu skáþaki. Húsið var kallað Hvammur. Það var upphaflega byggt í kastalastíl, með tenntri þakbrún og stóð þannig óbreytt fram á 6. áratug aldarinnar. Árið 1957 var svo samþykkt leyfi til að hækka ris hússins, eða byggja rishæð ofan á þegar samþykkta 2. hæðina. Jóhann Friðjónsson arkitekt gerði þá nýja teikningu að hækkun hússins, bæði 2. hæð og rishæð. Þegar húsið var brunavirt í desember sama ár var búið að byggja ofan á það 2. hæðina, ásamt rishæðinni og breikka það með inndregnum svölum við allar hæðir á suðurhlið. Samkvæmt núverandi skipulagi hússins þá eru fjórar íbúðir í húsinu. 

Annað:
Íbúðin er frábærlega vel staðsett í þessu vinsæla hverfi, en stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir, útivist, leiksvæði og aðra þjónustu. 

Allar frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/01/202041.000.000 kr.41.000.000 kr.80 m2512.500 kr.
30/11/201524.600.000 kr.29.000.000 kr.80 m2362.500 kr.
30/07/200716.100.000 kr.24.800.000 kr.80 m2310.000 kr.
23/05/200614.760.000 kr.18.000.000 kr.80 m2225.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
RE/MAX
http://www.remax.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stakkholt 2A
Bílastæði
Skoða eignina Stakkholt 2A
Stakkholt 2A
105 Reykjavík
80.8 m2
Fjölbýlishús
211
865 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Snorrabraut 35
Skoða eignina Snorrabraut 35
Snorrabraut 35
105 Reykjavík
98.6 m2
Fjölbýlishús
311
760 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 11
Skoða eignina Drápuhlíð 11
Drápuhlíð 11
105 Reykjavík
89.1 m2
Fjölbýlishús
312
818 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðalækur 71
Skoða eignina Rauðalækur 71
Rauðalækur 71
105 Reykjavík
76.3 m2
Fjölbýlishús
211
942 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin