Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2026

Flúðasel 89

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
104.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
642.035 kr./m2
Fasteignamat
66.500.000 kr.
Brunabótamat
59.060.000 kr.
Mynd af Þorsteinn Gíslason
Þorsteinn Gíslason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1976
Jarðhæð
Garður
Svalir
Bílastæði
Fasteignanúmer
2056669
Landnúmer
113167
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upphaflegt
Raflagnir
upphaflegar
Frárennslislagnir
upphaflegt
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já
Upphitun
ofnakerfi
RE/MAX kynnir í einkasölu: Flúðasel – Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð með stæði í lokuðum bílakjallara Bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Flúðasel í Reykjavík. Íbúðin er vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðum stofum, suðursvölum og sérþvottahúsi innan íbúðar. Eigninni fylgir sérgeymsla ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason löggiltur fasteignasali í gsm 694-4700 eða steini@remax.is


Nánari lýsing eignar
Forstofuhol: Opið og rúmgott hol með stórum skáp og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa: Bjartar og rúmgóðar stofur með parketi á gólfi. Góð aðstaða fyrir bæði setustofu og borðstofu. Útgengt er á suðursvalir.
Eldhús: Rúmgott eldhús með grárri innréttingu og góðum borðkrók. Helluborð og bakaraofn í vinnuhæð ásamt innbyggðri uppþvottavél og ísskáp.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Barnaherbergi: Tvö barnaherbergi sem bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, til dæmis sem svefnherbergi, skrifstofu eða vinnuaðstöðu.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, innrétting undir handlaug og speglaskápur fyrir ofan. Upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu. Stór opnanlegur gluggi veitir góða náttúrulega birtu og loftun.
Þvottahús: Sérþvottahús innan íbúðar með hillum og stálvaski.
Geymsla: Sérgeymsla á jarðhæð, 7,8 fm, með hillum.
Bílastæði: Eigninni fylgir stæði í lokuðum bílakjallara.
Sameign: Hlutdeild í sameign hússins, meðal annars hjóla- og vagnageymslu.

Helstu framkvæmdir og viðhald – Flúðasel 89
2018–2019 – Íbúðarhús: Múrviðgerðir á ytra byrði hússins, viðhald á þaki og skipt um flesta glugga.
2024 – Bílageymsla: Umfangsmiklar endurbætur að utan, meðal annars drenlögn með húsinu og lagfæringar á þaki.
2026 – Íbúðarhús: Lokið við lekaviðgerðir á húsinu.
2026 – Bílageymsla: Endurbætur að innan, meðal annars einangrun, málun og endurnýjun hitakerfis. Einnig hefur verið lagt fyrir rafhleðsluaðstöðu

Staðsetning
Flúðasel er í grónu íbúðahverfi í Seljahverfi í Reykjavík. Staðsetningin hentar vel fjölskyldum enda stutt í skóla, leikskóla, útivistarsvæði og fjölbreytta verslun og þjónustu.
Björt og fjölskylduvæn eign með góðu skipulagi, suðursvölum og bílastæði í lokuðum bílakjallara.

Nánari upplýsingar og skoðun veitir Þorsteinn Gíslason löggiltur fasteignasali í gsm 694-4700 eða steini@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/02/202560.300.000 kr.65.000.000 kr.104.2 m2623.800 kr.Já
14/02/201936.500.000 kr.42.000.000 kr.104.2 m2403.071 kr.Já
13/02/201420.300.000 kr.20.200.000 kr.104.2 m2193.857 kr.Nei
25/08/200617.250.000 kr.17.500.000 kr.104.2 m2167.946 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1986
Fasteignanúmer
2056669
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
7
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.060.000 kr.

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðagerði 10
Hleðslustöð
Opið hús:08. nóv. kl 15:30-16:00
Skoða eignina Rauðagerði 10
Rauðagerði 10
108 Reykjavík
97,2 m2
Fjölbýlishús
413
771 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 509
Bílastæði
Opið hús:07. nóv. kl 13:00-14:00
Vesturvin V1 íb 509
101 Reykjavík
100,2 m2
Fjölbýlishús
322
1248 þ.kr./m2
125.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V2 - íbúð 404
Bílastæði
Opið hús:07. nóv. kl 13:00-14:00
Vesturvin V2 - íbúð 404
101 Reykjavík
111,7 m2
Fjölbýlishús
312
1092 þ.kr./m2
122.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V3 íb 207
Bílastæði
Opið hús:07. nóv. kl 13:00-14:00
Vesturvin V3 íb 207
101 Reykjavík
124,6 m2
Fjölbýlishús
41
1067 þ.kr./m2
132.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin